Martröð í beinni - Vissi ekki að upptaka væri í gangi og viðurkenndi framhjáhald

Jonathan Clauss, leikmaður Nice í Frakklandi, upplifði heldur betur fjaðrafok eftir að ummæli hans um framhjáhald birtust í heimildarmynd á vegum franska íþróttablaðsins L'Équipe.

Clauss ræddi þar fyrri ástarsambönd sín og viðurkenndi að hafa verið ótrúr í fortíðinni. Ummælin vöktu mikla athygli á samfélagsmiðlum og töldu margir að hann væri að játa framhjáhald í núverandi sambandi.

Frakkinn brást við umræðunni og sagði ummæli sín hafa verið tekin úr samhengi. Hann gagnrýndi sérstaklega hvernig brot úr viðtalinu hafði verið birt og sagði það gefa ranga mynd af því sem hann hefði verið að ræða.

Clauss lagði áherslu á að hann hefði verið að tala um fortíð sína en ekki núverandi samband. Hann sagði jafnframt að eiginkona hans ætti skilið virðingu og ætti ekki að þurfa að sæta slíkri umræðu vegna ummæla hans.

Málið vakti það mikil viðbrögð að L'Équipe ákvað að fjarlægja myndskeiðið úr heimildarmyndinni og biðjast afsökunar á birtingunni.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅