Fer alltaf í bátsferð í París
Leikkonan Jennifer Garner fer reglulega til Parísar og fer þá alltaf í bátsferð um Signu. Hún fór í fyrsta skipti í bátsferð í borg ástarinnar þegar börnin hennar voru lítil.
„Ég hef núna gert þetta í hvert skipti sem ég fer,“ sagði Garner og ljóstraði því upp að bátsferð um Signu væri orðin að hefð þegar hún fer til Parísar.
Það var sjónvarpskokkurinn Ina Garten sem stakk upp á því að hún skoðaði París á báti. Garner var einmitt í hlaðvarpsviðtali hjá umræddum sjónvarpskokki þegar hún sagði frá hefðinni að því fram kemur á vef E!.
Garner fór í fyrstu bátsferðina með börnum sínum þremur þegar hún var enn gift leikaranum Ben Affleck. Leikarinn var í London í tökum á bíómynd og Garner ákvað að taka börnin úr skóla í sex vikur til þess að vera nær föður sínum. Í leiðinni fóru þau til Feneyja og Parísar.
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
