Innlendar vörur haldi matarverðinu uppi

Á síðustu tólf mánuðum hefur verð á fiski hækkað mest, eða um 13,7%. Ávextir hafa hækkað um 5,8%, en kjöt um 5,0% og mjólkurvörur um 4,7%, að því er fram kemur í greiningunni. mbl.is/Karítas

Verð á mat og óáfengum drykkjum hækkaði um 0,4% í október samkvæmt mælingu Hagstofunnar og hefur hækkað um 3,9% á síðustu tólf mánuðum. Það gerðist þrátt fyrir að stærstu matvöruverslanir landsins hafi fryst eða lækkað verð á fjölda vara í haust.

Í greiningu sem nýlega var unnin af greiningardeild Íslandsbanka kemur fram að skýringin liggi að hluta í því hvernig vísitala neysluverðs er reiknuð.

Þar fær hver vara fær vægi eftir hlutdeild í útgjöldum heimilanna og matur og óáfengir drykkir vega 15,3% af vísitölunni. Innan matarliðarins vega mjólkurvörur, kornvörur og kjöt þyngst, og eru það einmitt kjöt og mjólkurvörur sem hækkað hafa mest í verði að undanförnu.

Breytt neyslumynstur sjáist ekki strax

Tímasetning skiptir einnig máli, enda safnar Hagstofan verðum í um það bil eina viku um miðjan mánuð, þannig að tilboð utan þess tíma koma ekki fram í mælingunni.

Þá samsvari verðfrysting ekki lækkun, enda leggi vara sem kostar það sama og áður ekkert til breytinga á vísitölunni. Samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ hækkaði dagvöruvísitalan um rúm 0,4% milli september og október, sem er mesta hækkun síðan í mars.

Heimili geti engu að síður greitt minna fyrir matinn með því að færa sig í ódýrari vörumerki eða kaupa vörur á tilboði, en slíkur sparnaður kemur ekki fram í vísitölunni, sem mælir verðbreytingar en taki ekki tillit til breyttrar neysluhegðunar fyrr en við árlega uppfærslu vægisins.

Verð á fiski hækkað um 13,7%

Þegar rýnt er í undirliði matarliðarins skv. Hagstofu Íslands kemur skýrt mynstur í ljós, að því er fram kemur í greiningunni. 

Á síðustu tólf mánuðum hafi verð á fiski hækkað mest, eða um 13,7%. Ávextir hafa hækkað um 5,8%, en kjöt um 5,0% og mjólkurvörur um 4,7%.

„Undanfarna tvo mánuði hefur kjöt hækkað um 1,5% og mjólkurvörur um 1,2%, en verð á ýmsum öðrum vörum, svo sem kornvörum, hefur staðið í stað eða lækkað.“

Hækkandi laun áfram einn þrýstiþátta

Sterk króna hefur líklega skapað svigrúm til verðlækkana á ýmsum innfluttum vörum og hefur verð á ávöxtum, sem eru að mestu innfluttir, lækkað um 0,6% síðustu tvo mánuði.

Á innlendum landbúnaðarvörum er svigrúmið hins vegar minna, þar sem verð til bænda og heildsöluverð mjólkur ákvarðast að stórum hluta utan verslananna.

Verðlagsnefnd búvara hafi til að mynda hækkað heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara um 1,4% í september, sem var þriðja hækkunin á árinu.

Þá skipti launakostnaður máli; bæði séu innlend matvælaframleiðsla og smásala mannaflsfrekar greinar og launavísitala hafi hækkað um 5,6% á undanförnu ári, talsvert umfram hækkun matarliðarins á sama tíma.

„Að okkar mati er hækkandi launakostnaður því áfram einn þeirra þátta sem halda uppi verðþrýstingi á matvörum,“ segir í greiningunni.

Ólíklegt þykir þó að matarliðurinn lækki að ráði það sem af er ári og þegar frystingum lýkur gæti hluti uppsafnaðs kostnaðar komið fram í upphafi næsta árs. Ljósmynd/Colourbox

Hægir á hækkunum en verðbólga þrálát

Árshækkun matarliðarins hefur hjaðnað úr 5,8% í mars í 3,9% í október, en í haust hefur hækkunartakturinn aukist á ný og liðurinn hækkað um 0,3–0,4% á mánuði frá því í ágúst. Mögulega héldu verðfrystingar og verðlækkanir verslana aftur af frekari hækkunum, en of snemmt er að meta það út frá einni mælingu.

Verðfrystingar gætu haldið aftur af hækkunum fram að áramótum og nýjasta mæling ASÍ bendir til þess að verðlag hafi nánast staðið í stað í nóvember. Ólíklegt þykir þó að matarliðurinn lækki að ráði og þegar frystingum lýkur gæti hluti uppsafnaðs kostnaðar komið fram í upphafi næsta árs.

Stóra myndin er að mati greiningardeildarinnar engu að síður sú að verðþrýstingur fer minnkandi. Hagkerfið sé að kólna og vænta megi þess að hægi á verðhækkunum víðar í vísitölu neysluverðs á næstunni.

„Við teljum þó að verðbólga verði áfram þrálát og yfir 2,5% markmiði Seðlabankans næstu misserin. Í nýlegri þjóðhagsspá okkar gerum við ráð fyrir að hún verði að jafnaði 4,5% á næsta ári og 3,6% árið 2028,“ segir að endingu í greiningunni.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅