Barcelona ekki tapað stigum í 18 mánuði

Janus Daði Smárason skoraði eitt mark í kvöld.

Janus Daði Smárason skoraði eitt mark í kvöld. mbl.is/Eyþór Árnason

Spánarmeistarar Barcelona eru með fullt hús stiga eða 16 stig á toppi spænsku 1. deildarinnar í handbolta eftir stórsigur gegn Caserio í 8. umferð deildarinnar í Barcelona í kvöld.

Leiknum lauk með öruggum sigri Barcelona, 34:18, en Janus Daði Smárason skoraði eitt mark úr einu skoti fyrir Barcelona.

Viktor Gísli Hallgrímsson var ekki í leikmannahóp Barcelona en Þorgils Jón Svölu Baldursson komst ekki á blað hjá Caserio.

Barcelona tapaði síðast stigum í spænsku 1. deildinni þann 3. maí á síðasta ári þegar liðið gerði jafntefli við La Rioja á heimavelli.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅