Svíþjóðarmeistararnir enn án sigurs

Thelma Karen Pálmadóttir.

Thelma Karen Pálmadóttir. Ljósmynd/Alex Nicodim

Svíþjóðarmeistarar Häcken eru enn án sigurs í Meistaradeildinni eftir jafntefli gegn Chelsea í 4. umferð deildarinnar í Gautaborg í dag.

Leiknum lauk með markalausu jafntefli, 0:0, en Thelma Karen Pálmadóttir var í byrjunarliði Häcken og lék fyrstu 85 mínútur leiksins.

Häcken er með 2 stig í 14. sætinu, stigi minna en Benfica sem er í því 12. en tólf efstu liðin komast áfram í útsláttarkeppnina.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅