Bandarískur hermaður grunaður um njósnir fyrir Rússa
Bandarískur hermaður var handtekinn í Bretlandi í dag grunaður um að stunda njósnir fyrir Rússa.
Þetta kemur fram í tilkynningu bresku lögreglunnar.
Maðurinn er 41 árs gamall og hefur ekki verið nafngreindur að svo stöddu.
Unnu náið saman
Breska lögreglan kveðst hafa unnið náið með bandarískum yfirvöldum að málinu og er maðurinn í haldi í fangelsi í Lundúnum.
„Ásakanirnar eru alvarlegar og rannsókn okkar stendur enn yfir af fullum krafti,“ er í tilkynningunni haft eftir háttsettum lögregluþjóni.
„Meint háttsemi háttsetts hermanns, sem var treyst fyrir viðkvæmum upplýsingum, er alvarleg áminning um að ógnir innan frá eru raunverulegar og viðvarandi,“ er jafnframt haft eftir hershöfðingja innan Bandaríkjahers.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗