Stunginn til bana á geðdeild
Vistmaður á geðdeild í Drammen situr í gæsluvarðhaldi fyrir að stinga annan til bana á deildinni á föstudaginn. Að sögn TV2 hefur grunaði áður hlotið dóm fyrir hnífstungu. mbl.is/Atli Steinn Guðmundsson
Ann Iren Svane Mathiassen, ákæruvaldsfulltrúi lögreglunnar í suðausturumdæminu í Noregi, segir að vaninn sé að lögreglu sé tilkynnt fyrr um atvik á borð við það sem varð á lokaðri geðdeild í Drammen á föstudaginn þegar vistmaður þar stakk annan til bana með eggvopni.
Um 20 mínútur liðu frá atlögu mannsins þar til starfsfólk deildarinnar hafði samband við lögreglu sem kom á vettvang og handtók árásarmanninn. Sá var leiddur fyrir dómara á laugardagsmorgun og úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald sem hann situr þó ekki í fangaklefa heldur á annarri stofnun og fylgir bréfa- og heimsóknabann úrskurðinum.
Áður dæmdur fyrir hnífstungu
Grunaði viðurkennir ekki sök að sögn norska dagblaðsins VG sem auk þess segir það ráðgátu hvernig manninum tókst að koma með hníf meðferðis inn á lokaða deild. TV2 greinir enn fremur frá því að maðurinn hafi áður hlotið dóm fyrir hnífstunguárás.
„Við vitum ekki hver ástæðan var, grunaði verður samkvæmt áætlun yfirheyrður á morgun,“ sagði Mathiassen við norska ríkisútvarpið í gær og hafa yfirheyrslurnar því að væntingu hafist í dag.
Enn fremur segir ákæruvaldsfulltrúinn að lögreglu sé ekki kunnugt um hvað olli því að ekki var haft samband við lögreglu fyrr, því þurfi starfsfólk sjúkrahússins einfaldlega að svara.
Starfsfólk hafði um annað að hugsa
Að sögn Sondre Engebretsen, yfirlæknis geð- og vímuefnadeildar Vestre Viken á Sjúkrahúsinu í Drammen, hafði starfsfólk þar hugann við annað en að hringja í lögreglu mínúturnar eftir að vistmaðurinn var stunginn til bana. „Strax eftir atvikið var öll áherslan á að bjarga mannslífum og ná stjórn á aðstæðum,“ útskýrir Engebretsen fyrir NRK.
Við innlögn á deildina er öryggisleit á sjúklingi og í farangri hans framkvæmd í samræmi við verklagsreglur, en að sögn yfirlæknisins er almennt ekki um frekari leit að ræða síðar nema upp komi rökstuddur grunur um að sjúklingar reyni að verða sér úti um háskalega hluti.
Engebretsen vill ekki svara því hvort brot á öryggisreglum hafi orðið til þess að grunaði gat komist yfir hníf, um það verði ekkert sagt fyrr en farið hafi verið kirfilega ofan í saumana á því sem gerðist á föstudaginn.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗