Treysti sér ekki til þess að tala
Meghan hertogaynja af Sussex mætti á opinberan viðburð í dag í Brussel. Þetta er í fyrsta skipti sem hún sést opinberlega síðan að faðir hennar var handtekinn fyrir vörslu barnaníðsefnis. Meghan treysti sér ekki til að tala á viðburðinum.
Harry Bretaprins og Meghan hertogaynja voru stödd í Brussel til þess að vera viðstödd viðburð um öryggi barna á netinu. Meghan átti að halda ræði en hætti við á síðustu stundu að því fram kemur á vef BBC. Hún treysti sér ekki til þess. Harry fékk það hlutverk að tala fyrir þeirra hönd.
Heimildarmenn sem standa Sussex-fjölskyldunni nærri segja að síðustu tvær vikur hafi verið tilfinningalega erfiðar. Faðir Meghan, Thomas Markle, sætir nú stofufangelsi og rafrænu eftirliti eftir að hafa komið fyrir dóm í Flórída á föstudag. Hann var ákærður fyrir vörslu mynda sem sýna kynferðisofbeldi gegn börnum. Hann hefur neitað sök.
Miður sín
Meghan hefur ekki verið í sambandi við föður sinn í nokkur ár. Hann var ekki viðstaddur brúðkaup hennar í Windsor árið 2018 og bar þá fyrir sig heilsubrest. Þegar fréttir bárust af Thomas Markle í síðasta mánuði, þar á meðal fullyrðingar um að hann hefði í fórum sínum myndir sem sýna kynferðisofbeldi gegn börnum, sendi Meghan frá sér yfirlýsingu. Þar sagðist hún vera miður sín vegna fréttanna og vonaðist til þess að réttlætið næði fram að ganga.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
