Ríkið ætlaði að selja myglað hús í Laugarási í einkasölu til yfirlæknis

Allt þetta ár hefur í fjárlögum verið til staðar heimild fyrir fjármálaráðherra til að selja íbúðarhús, í eigu ríkisins, í Laugarási til yfirlæknis heilsugæslunnar á Flúðum þrátt fyrir að mygla hafi fundist í húsnæðinu. Heimildin kveður á um að sala hússins til læknisins skuli byggjast á óháðu verðmati. Var þessari heimild bætt inn í fjárlögin að beiðni Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og heilbrigðisráðuneytisins sem töldu brýnt að leysa húsnæðisvandamál lykilstarfsmanns. Læknirinn gerði tilboð í húsið á grundvelli verðmatsins, sem ríkið samþykkti, en var vel meðvitaður um að kostnaðarsamra viðgerða væri þörf vegna ástands hússins. Hins vegar er nú orðið ljóst að ekkert verður af sölunni til læknisins og til stendur að veita ráðherra í fjárlögum næsta árs heimild til að selja húsið en þá án þess að það sé bundið við sölu til ákveðins aðila.

Umrætt hús er Launrétt 6 í Laugarási í Biskupstungum, í uppsveitum Árnessýslu, en Laugarás tilheyrir sveitarfélaginu Bláskógabyggð. Húsið var byggt árið 1965 og í því voru heilsugæslustöð, apótek og íbúð fyrir lækni og fjölskyldu viðkomandi. Heilsugæslustöðin var hins vegar flutt árið 1996 í nýtt og stærra húsnæði, steinsnar frá. Apótekið hætti síðar rekstri meðal annars þar sem sá hluti hússins sem tilheyrði því þótti of lítill til að uppfulla nútímakröfur.

Í fjárlögum fyrir árið 2026 segir undir liðnum heimildir ráðherra:

„Að selja íbúðarhús við Launrétt 6 í Laugarási til yfirlæknis heilsugæslunnar á grundvelli óháðs verðmats.“

Í fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár segir hins vegar:

„Að selja íbúðarhús við Launrétt 6 í Laugarási.“

Í umræðum um fjárlög ársins 2026 í desember síðastliðnum fór Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, háðslegum orðum um þessa sölu. „Svo óska ég ykkur velgengni í því að selja íbúðarhúsið við Launrétt 6 í Laugarási til yfirlæknis heilsugæslunnar á grundvelli óháðs verðmats. Þetta er stórt skref,“ sagði hann.

Frá því að heilsugæslustöðin flutti í nýtt húsnæði við Launrétt árið 1996 hefur Launrétt 6 skipst í 246,8 fermetra íbúð fyrir fastráðinn lækni á heilsugæslustöðinni og minni íbúð, 59,5 fermetrar, sem einkum var nýtt fyrir lækna sem störfuðu á stöðinni til skamms tíma í afleysingum. Þriðji hluti hússins, 67,2 fermetrar, er síðan enn skráður sem apótek í fasteignaskrá. Launrétt 6 er því samtals 373,5 fermetrar að stærð og fasteignamat eignarinnar er 97 milljónir króna en það mun á næsta ári hækka upp í 98,9 milljónir.

Mikill styr um flutninga heilsugæslustöðvar

Á síðasta ári var heilsugæslan flutt frá Laugarási og yfir á Flúðir en mikill styr stóð um flutningana. Íbúar Laugaráss og Bláskógabyggðar almennt og sveitarstjórnarfulltrúar mótmæltu hástöfum enda átti heilsugæslustöð í Laugarási sér um 100 ára langa sögu. Akstursfjarlægðin á milli Laugaráss og Flúða er um 24 kílómetrar. Heilbrigðisstofnun Suðurlands rökstuddi nauðsyn flutninganna meðal annars með stöðugri fjölgun íbúa og aukinni uppbyggingu í uppsveitum Suðurlands. Einnig var vísað til þess að húsnæði heilsugæslunnar á Flúðum væri fjárhagslegra hagkvæmara og uppfyllti betur nútímakröfur en hið 30 ára gamla húsnæði heilsugæslunnar, í Laugarási. Fullyrt var að viðhaldsþörf húsnæðisins næmi um 150 milljónum króna en sveitarstjórn Bláskógabyggðar andmælti því og sagði þær fullyrðingar ekki byggja á neinum gögnum öðrum en skýrslu um ástand heilsugæslustöðvarinnar í Þorlákshöfn sem væri í svipuðu húsnæði. 

Tilkynnt var um fyrirhugaðan flutning heilsugæslustöðvarinnar frá Laugarási til Flúða sumarið 2024 en um svipað leyti virðist hafa orðið vart við raka- og mögulegt mygluvandamál í Launrétt 6. Verkfræðistofan Efla framkvæmdi í október þetta ár skoðun á húsinu og samdi um það ítarlega skýrslu. Það kemur ekki fram í skýrslunni hver óskaði eftir skoðuninni en skjalið heitir eftir félagi í eigu yfirlæknisins á heilsugæslustöðinni, Hafdísar Sifjar Svavarsdóttur.

Samkvæmt skýslunni fannst mygla á tveimur stöðum í húsinu og það þarfnast ýmis konar viðgerða. Samkvæmt kostnaðaráætlun Framkvæmdasýslunnar-Ríkiseigna munu viðgerðir kosta á þriðja tug milljóna króna. 

Mygla sem gæti verið varasöm heilsu fólks

Í skýrslu Eflu kemur fram að merki um aukin raka fundust víða í húsinu. Í DNA-sýni, sem sent var til greiningar í Danmörku, kom í ljós að myglan sem fannst gæti verið varasöm fyrir heilsu fólks. Segir í viðauka við skýrsluna að mikið magn myglu hafi fundist í sýninu og var hún rakin til rakavandamála. Þá er í skýrslunni mælt með ýmsum úrbótum og viðgerðum á húsinu. 

Samkvæmt kostnaðaráætlun sem Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir lét vinna í kjölfarið ætti að kosta um 27 milljónir króna að koma húsinu í íbúðarhæft ástand en vikmörkin á upphæðinni eru 30 prósent. Í kostnaðaráætluninni, sem er dagsett 8. september 2025, er gert ráð fyrir víðtækum viðgerðum á borð við múrbrot og endurnýjun á einangrun, gólfefnum, ofnum og vatns- og hitalögnum. 

Þrátt fyrir þessa kostnaðaráætlun og skýrslu Eflu um ástand hússins fór heilbrigðisráðuneytið fram á það, að beiðni Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, að veitt yrði heimild til þess að selja Launrétt 6 til yfirlæknisins. 

Lausn á húsnæðisvanda lykilstarfsmanns

Þegar fjárlagafrumvarpið fyrir árið í ár kom til meðferðar í fjárlaganefnd Alþingis sendi fjármálaráðuneytið erindi þess efnis að nefndin bætti inn í fjárlögin heimild til handa fjármálaráðherra til að selja Launrétt 6 til yfirlæknisins, á grundvelli óháðs verðmats. Erindið er á vef Alþingis dagsett 14. nóvember 2025 og þar af leiðandi eftir að áðurnefnd skýrsla um ástand Launréttar 6 og áætlun um kostnað við nauðsynlegar viðgerðir og endurbætur lágu fyrir.

Umrætt erindi ráðuneytisins varðaði þó ekki eingöngu Launrétt 6, en þegar kemur að því húsi segir í erindinu að heilbrigðisráðuneytið hefði óskað eftir að gengið yrði til beinna samninga um sölu á húsinu til yfirlæknis heilsugæslunnar sem hefði verið með húsið á leigu um árabil vegna starfa sinna hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Komið væri að talsverðu viðhaldi á eigninni og talið væri hagkvæmara að selja hana fremur en að ráðast í kostnaðarsama viðhaldsframkvæmdir. Um langt skeið hefði verið unnið að því að selja stór og óhagkvæm íbúðarhús á vegum ríkisins og kaupa fremur minni og hagkvæmari einingar í staðinn ef slíkt væri talið nauðsynlegt í embættisbústöðum á vegum ríkisins eða vegna eðlis starfseminnar. 

Segir enn fremur að það sé mat heilbrigðisráðuneytisins og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands að mikilvægt væri að tryggja samfellu í læknisþjónustu á svæði þar sem skortur á læknum hafi lengi verið viðvarandi vandamál og koma í veg fyrir að yfirlæknir heilsugæslunnar, sem gegndi lykilhlutverki í þjónustunni, neyddist til að flytja af svæðinu yrði húsið selt á almennum markaði. 

„Ljóst er að um sérstakt tilvik er að ræða sem snýr að lausn á húsnæðisvanda lykilstarfsmanns í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Af þeim sökum er talið réttlætanlegt að óska eftir beinni söluheimild í þessu tilviki með það að markmiði tryggja samfellu í þjónustu á svæðinu og forðast aðra, fjárhagslega þyngri kosti, s.s. viðgerðir á húsnæðinu eða kaup og leigu nýrrar fasteignar,“ segir í erindi ráðuneytisins.

Verðmat úr 130 milljónum í 119 milljónir

Í janúar síðastliðnum var gert verðmat þar sem áætlað markaðsverð Launréttar miðað við gott ástand var sagt 159 milljónir króna en vegna hins fyrirséða viðgerðarkostnaðar og ónæðis vegna viðgerðanna yrði að lækka markaðsverðið niður í 119 milljónir.

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir hafði áður látið gera verðmat á húsinu, í júní 2025, en þá lá kostnaðaráætlunin ekki fyrir og heldur ekki heimildin til einkasölunnar. Í því mati segir að þörf sé á að endurnýja ýmsar lagnir og að gera þurfi við raka í húsinu. Segir í matinu að miðað við ástand hússins, stöðu fasteignamarkaðarins og almenn greiðslukjör sé raunhæft söluverð 130 milljónir króna. 

Áætlað markaðsverð Launréttar 6 lækkaði því um 11 milljónir króna á hálfu ári. Fyrrnefnda matið er hins vegar hið óháða mat sem einkasala ríkisins á Launrétt 6 til yfirlæknisins átti að byggja á.

Tilboð en ekki sala

Þann 9. september síðastliðinn gerði læknirinn kauptilboð í húsið og var upphæð þess sú sama og í matinu frá því í janúar, 119 milljónir króna og samþykkti ríkið tilboðið. Fyrirvarar voru hins vegar í tilboðinu og rann það út þann 1. nóvember. Einnig var tekið sérstaklega fram að Hafdísi Sif væri kunnugt um ástand hússins en eins og áður kom fram hafði hún búið í húsinu og greitt fyrir það leigu, en hún flutti úr húsinu fyrir nokkru síðan.

DV hafði spurnir af því að að salan hafi gengið í gegn en hefur fengið það staðfest hjá Framkvæmdasýslunni-Ríkiseignum að sú sé ekki raunin. Samkvæmt skriflegu svari stofnunarinnar við fyrirspurn DV tókst ekki að uppfylla fyrirvarana í tilboðinu og næsta skref sé þá að fá heimild til að setja Launrétt 6 í sölu á almennum markaði. Í umfjöllun RÚV kemur fram að Hafdís Sif segi að salan á húsinu til hennar hafi dottið upp fyrir og að Framkvæmdasýslan-Ríkiseginir hafi greint henni frá því að til standi að selja húsið á opnum markaði. 

Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2027 er að finna heimild fyrir því að fjármálaráðherra selji húsið en ekki er minnst á sölu til neins tiltekins aðila og því virðist ekki stefna í annað en að húsið verði selt á opnum markaði, eftir allt saman.

Ljóst er hins vegar eins og hér hefur komið fram að húsið þarfnast töluverðra viðgerða og hvort væntanlegur kaupandi sé tilbúinn til að taka þann kostnað á sig og að ríkissjóður þurfi þess þá ekki á eftir að koma í ljós.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅