Mjög eftirsóttur á Englandi

Chelsea, Tottenham og Newcastle hafa áhuga á Ismaelo Ganiou, miðverði Lens í Frakklandi.

Samkvæmt Teamtalk fylgjast félögin grannt með þessum tvítuga leikmanni, sem hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í frönsku úrvalsdeildinni.

Ganiou hefur verið líkt við Raphael Varane, fyrrverandi varnarmann Real Madrid, en báðir komu upp í gegnum akademíu Lens. Hann er hraður, líkamlega sterkur og góður á boltanum.

Talið er að fleiri stórlið gætu reynt við Ganiou, sem er samningsbundinn Lens til 2030 og verður því ekki fáanlegur ódýrt.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅