Spáir tengingu krónunnar við Garp
Mjólkursamsalan fagnar aldarafmæli á næsta ári og biður neytendur að velja sína uppáhaldsnostalgíuvöru á Facebook. Valið kemur á óvart. mbl.is/Kristinn
Mjólkursamsalan fagnar aldarafmæli sínu á næsta ári og undirbúningurinn er hafinn eins og fjöldi fólks hefur veitt athygli á Facebook-síðu þessa gamalgróna matvælaframleiðanda sem leit dagsins ljós 4. september 1927 sem Mjólkursamlag KEA.
Á Facebook auglýsir MS nú eftir hjálp almennings við að velja „fyrstu nostalgíuvöruna sem kemur á markað“ og biður þátttakendur að skrifa í athugasemd hverja af fjórum tilgreindum vörum þeir vilji helst sjá aftur.
Í forvali fyrir þessa lýðræðislegu kosningu eru Íþróttasúrmjólk, Garpur, Kívíjógúrt og Skyr.is með perum og hyggst MS, að sögn Aðalsteins Magnússonar, sölu- og markaðsstjóra, hefja framleiðslu á fjórum „nostalgíuvörum“ á afmælisárinu svo ef til vill má reikna með fleiri kosningum. Segir Aðalsteinn viðtökurnar munu ráða því hvort tímabundið verði eða til frambúðar.
Að öðru leyti verst hann allra frétta og baðst raunar undan viðtali þar til sjálft afmælisárið væri runnið upp – greinilegt er því að vel verður í lagt hjá MS enda tilefnið eftir því.
Óvæntur kandídat stígur inn
Eins fréttnæmt og hundrað ára afmæli MS verður að teljast eru viðbrögð svarenda kannski enn meiri frétt. Þegar þetta er skrifað hafa 699 athugasemdir verið gerðar við „kjörseðilinn“ á Facebook og vekur athygli hve kirfilega kjósendur hafa nýtt sér rétt sinn til að strika yfir einstaka frambjóðendur, lýðræði í framkvæmd.
Garpur virðist raunar í fljótu bragði fá fæstar útstrikanir og gæti tæknilega séð náð þingsæti, hlýtur kannski að gera það miðað við einn flokk og fjóra frambjóðendur. Kjósendur vilja hins vegar ólmir fá kandídat á þing sem ekki er einu sinni í framboði, ekki einu sinni í heiðurssæti listans.
Þetta er jógúrt með hnetu- og karamellubragði sem naut töluverðs fylgis einhvern tímann endur fyrir löngu og nefnir fjöldi athugasemdaritara hana auk þess sem Svarti-Pétur er nefndur og Skólajógúrt með lakkrísbragði. Margir vilja raunar endurheimta alla bragðlínuna af Skólajógúrt.
Fannar Snær Smárason biður MS um að bjarga jólunum með því að koma með Mysuost aftur og sveipar kosninguna þar með trúarlegum blæ, en sérstaka athygli vekur að Ívar Örn Hansen, betur þekktur sem Helvítis kokkurinn, greiðir Kívíjógúrtinni atkvæði sitt, frambjóðanda á lista.
Nostalgíulisti MS. Hvað vilja þeir, hvert stefna þeir, hvar enda þeir? Tveir frambjóðendanna hafa fylgi nálægt frostmarki, tveir hafa nokkurn byr í segl, en hinn almenni neytandi á Facebook krefst einnig róttækra breytinga á lista. Skjáskot/Facebook
Norski olíusjóðurinn muni reyna kaup á MS
Raunar sópar Garpur einnig til sín einhverjum atkvæðum – glúrnir stjórnmálaskýrendur höfðu raunar spáð því að svo kynni að fara – og nýtur raunar mikillar hylli sumra kjósenda, til dæmis Ólafs Kára Júlíussonar sem hefur þá kenningu að Seðlabanki Íslands muni fara þá leið út úr svartnætti verðbólgu að tengja gengi krónunnar við Garp auk þess sem norski olíusjóðurinn muni freista þess að kaupa MS og skipta olíu út fyrir þennan vinsæla mjólkurdrykk.
Spá greiningardeildar Ólafs er eftirfarandi:
MS verður verðmætasta félagið á Íslandi innan 48 klst. Svo verðmætt að Seðlabankinn mun tengja gengi krónunnar við Garp. Norski olíusjóðurinn mun reyna að kaupa MS til að skipta út olíubirgðum fyrir Garp. Garpur verður eina ástæða þess að ferðamenn koma til Íslands - "How do you like Garpur". Á endanum mun MS kaupa Arion, Íslandsbanka og Landsbankann og bjóða Garptryggð fasteignalán. Landinn þiggur laun í Garpi og enginn þarf að deyja úr þorsta í heiminum.
Allt getur gerst í beinni
Þar sem kjörstöðum hefur enn ekki verið lokað getur vissulega allt gerst, en miðað við fyrstu tölur stefnir í að ný nostalgíustjórn MS muni taka völd án þess að hafa svo mikið sem verið í framboði, þetta er ráðuneyti hnetu- og karamelluráðherra þótt nánast sé óhætt að fullyrða að stjórnarmyndun muni ekki eiga sér stað án aðkomu Garps, forseti gæti jafnvel falið honum að leiða stjórnarmyndunarviðræður.
Ísey telst líklega ekki nostalgíuvara og skortir hugsanlega kjörgengi vegna æsku. Full ástæða er þó til að reikna með henni á lista á 150 ára afmæli MS. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Kívíjógúrtin gæti rétt marið þingsæti, en verður í besta falli í stjórnarandstöðu á meðan Skyr.is fær kannski að sinna garðvinnu við þinghúsið. Erfitt er að segja nokkuð með vissu um örlög Íþróttasúrmjólkurinnar nema einhvers konar hulduher komi henni til fulltingis eins og í dæmi Alberts Guðmundssonar á níunda áratug síðustu aldar.
Líklega verður ekkert af þessu ljóst að fullu fyrr en á hundrað ára afmælisári MS 2027 – spennan eykst.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

