Njarðvíkingurinn öflugur í Evrópubikarnum
Elvar Már Friðriksson átti mjög góðan leik fyrir Neptunas þegar liðið tók á móti Slask Wroclaw í C-riðli Evrópubikarsins í körfubolta í Litáen í kvöld.
Leiknum lauk með tíu stiga sigri Neptunas, 92:82, en Elvar skoraði 10 stig, tók eitt frákast og gaf fimm stoðsendingar á þeim 24 mínútum sem hann lék.
Neptunas er í sjöunda og næstneðsta sæti riðilsins með 4 stig, tveimur stigum minna en Buducnost sem er í fjórða sætinu en efstu fjögur lið riðilsins komast áfram í 16-liða úrslitin.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗