Rifti samningnum við Val
Knattspyrnukonan Sonja Björg Sigurðardóttir hefur rift samningi sínum við Val.
Það er fótbolti.net sem greinir frá þessu en Sonja Björg, sem er tvítug, gekk til liðs við félagið fyrir síðasta keppnistímabil frá uppeldisfélagi sínu Þór/KA.
Hún lék 15 leiki með Val í Bestu deildinni í sumar en liðið hafnaði í níunda og næstneðsta sæti deildarinnar og féll í 1. deildina.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗