Lifði af tvær vikur grafinn neðanjarðar – Nú er hann látinn, aðeins 54 ára

Ástralski námuverkamaðurinn Todd Russell, sem vakti heimsathygli árið 2006 þegar hann lifði af í 14 daga fastur á tæplega eins kílómetra dýpi í gullnámu, er látinn, 54 ára að aldri.

Russell hafði glímt við alvarleg veikindi um nokkurt skeið og greindi sjálfur frá því fyrir viku að hann ætti skammt eftir ólifað. Ástralskir fjölmiðlar greina frá andláti hans en talsvert var fjallað um björgunina á sínum tíma, meðal annars hér á landi.

Russell var annar tveggja námuverkamanna sem bjargað var úr Beaconsfield-gullnámunni í Tasmaníu eftir að grjóthrun varð þar þann 25. apríl 2006. Þriðji námuverkamaðurinn, Larry Knight, lést í slysinu.

Russell og samstarfsmaður hans, Brant Webb, lokuðust inni djúpt neðanjarðar og hófst þá örvæntingarfull barátta við tímann. Milljónir manna fylgdust með björgunaraðgerðunum sem stóðu yfir í tvær vikur.

Skrifuðu kveðjubréf til fjölskyldnanna

Aðstæður mannanna voru skelfilegar. Þeir voru fastir í körfu vinnuvélar á tæplega eins kílómetra dýpi og höfðu litla hugmynd um hvort þeim yrði nokkurn tíma bjargað.

Fyrstu fimm dagana héldu þeir lífi með því að drekka grunnvatn og narta í múslístöng sem þeir höfðu tekið með sér í námuna. Á meðan unnu björgunarmenn að því að sprengja ný göng til þeirra og tókst loks að ná sambandi við þá eftir fimm daga.

Á meðan þeir biðu björgunar skrifuðu Russell og Webb kveðjubréf til fjölskyldna sinna þar sem þeir lýstu því sem hafði gerst. Þeir gerðu jafnframt með sér samkomulag um að ef aðeins annar þeirra lifði af skyldi hann afhenda fjölskyldu hins bréfin.

„Ég held að það hafi verið erfiðasti hluti allrar þessarar reynslu, að skrifa bréfin til ástvinanna heima,“ sagði Russell síðar.

Eftir 14 daga neðanjarðar tókst loks að bjarga mönnunum. Milljónir Ástrala fylgdust með í sjónvarpi þegar Russell kom upp á yfirborðið og sameinaðist fjölskyldu sinni.

Mennirnir urðu þjóðhetjur í Ástralíu og síðar var bæði gefin út bók og gerð sjónvarpsmynd um þrekraun þeirra.

„Ég á enga baráttu eftir í mér“

Þótt Russell hefði sloppið lifandi úr námunni reyndust afleiðingarnar honum þungbærar. Hann ræddi síðar opinberlega um það mikla andlega álag sem fylgdi slysinu og fjölmiðlaathyglinni í kjölfarið. Reynslan hafði meðal annars áhrif á hjónaband hans, sem endaði með skilnaði.

Þann 3. nóvember síðastliðinn birti Russell átakanlega færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann greindi frá því að hann væri á leið heim af sjúkrahúsi eftir meira en átta mánaða meðferð. Hann ætlaði að eyða síðustu dögum ævi sinnar með fjölskyldu sinni og ástvinum.

Ekki hefur verið greint opinberlega frá því hvaða sjúkdómur dró hann til dauða.

„Eftir margra ára sársauka, óvissu, læknisheimsóknir, meðferðir, áföll og endalausa baráttu, ásamt þeirri andlegu örmögnun sem fylgir því að þurfa sífellt að rífa sig upp aftur, á ég einfaldlega ekkert eftir til að gefa,“ skrifaði hann.

„Nú er svo komið að engir frekari möguleikar eru í stöðunni. Ég á enga baráttu eftir í mér.“

Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, er meðal þeirra sem hafa minnst Russells eftir andlátið. Hann sagði að æðruleysi, seigla og kímnigáfa Russells hefðu endurspeglað það besta í fari áströlsku þjóðarinnar.

Russell starfaði um áratugaskeið í slökkviliði Beaconsfield og lét þar af störfum í febrúar síðastliðnum eftir 31 árs þjónustu við samfélagið. Hann var jafnframt ötull talsmaður geðheilbrigðismála.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅