Allt undir hjá íslensku strákunum - Þetta hafa veðbankar að segja um möguleikana

Það er mikið undir hjá strákunum í U-21 árs landsliði Íslands á næstu dögum, en liðið getur tryggt sér sæti í lokakeppni Evrópumótsins næsta sumar.

Ísland mætir Grikklandi í tveimur leikjum í umspili um sæti á mótinu. Fyrri leikurinn fer fram hér heima á fimmtudag og seinni leikurinn verður í Grikklandi á mánudag.

Veðbankar virðast meta það sem svo að Grikkir séu ívið sigurstranglegri í einvíginu en stuðullinn á sigur Íslands hér heima í fyrri leiknum er þó lægri en gestanna, 2,42 gegn 2,45 ef horft er í stuðlana á Lengjunni. Stuðull á jafntefli er 3,14.

Leikurinn fer fram klukkan 13 á fimmtudag á Þróttarvelli í Laugardalnum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅