„Ég er sagan endalausa“

Petra segist ekki alveg vita hvað geri mann að fagurkera, en ef það sé að gera það sem manni finnst flott sé hún „skuggalegur fagurkeri“.

Á Dalvík hefur Petra Breiðfjörð Tryggvadóttir komið sér upp fallegu heimili ásamt manni sínum, Kristni Inga Valssyni, fjórum börnum þeirra og hundi og ketti. Hún hefur mikinn áhuga á hönnun og hugar að hverju smáatriði til að skapa notalegt andrúmsloft fyrir fjölskylduna.

Petra segir ekkert eitt gera heimili að heimili, heldur fari það eftir smekk hvers og eins. Sjálf er hún hrifin af því að blanda saman ólíkum hlutum og er dugleg að breyta og bæta. Petra er 35 ára og fædd í Reykjavík en ólst upp í sjávarþorpinu Árskógssandi í Dalvíkurbyggð. Hún er innanhússráðgjafi og hefur byggt upp góðan hóp fylgjenda á samfélagsmiðlum, þar sem heimilið og hönnun eru í fyrirrúmi. Þar deilir hún ráðum og hugmyndum, sýnir frá framkvæmdum og leyfir fylgjendum að skyggnast inn í daglegt líf sitt.

Mildir tónar og vandað samspil húsgagna og smáhluta skapa falleg og stílhrein rými á heimili Petru. Ljósmynd/Aðsend

Áhugi á innanhússhönnun kviknaði á fyrstu meðgöngu

Petra segir áhugann hafa kviknað fyrir 13 árum og aukist jafnt og þétt síðan. „Áhuginn kom á milljón þegar ég var ófrísk að fyrsta barninu mínu fyrir 13 árum. Sem unglingur hafði ég alltaf áhuga á tísku og fatahönnun en pældi lítið í innanhússhönnun. Þegar kom að því að græja barnaherbergið fór ég hins vegar að leita að innblæstri á Instagram. Ég sló inn „baby boy’s room“ og annað slíkt og fann endalaust af fallegum myndum. Þá hugsaði ég: Herbergið hans verður svona flott, ef ekki flottara! Svo þróaðist þetta bara áfram og fljótlega var ég farin að huga að því hvernig ég gæti gert önnur rými heimilisins jafnfalleg.“

Petra hefur næmt auga fyrir því hvernig litir, form og smáatriði fara saman. Ljósmynd/Aðsend

Hún fór í kjölfarið að afla sér meiri þekkingar á innanhússhönnun og stíliseringu. „Mig dreymdi um að fara í nám í innanhússhönnun og stíliseringu en fékk því miður aldrei tækifæri til þess. Ég dó þó ekki ráðalaus og skráði mig á þau námskeið sem voru í boði og sótti í alls kyns fræðsluefni á netinu. Ég hlustaði á hlaðvörp, horfði á þætti og gat skrollað endalaust á Pinterest og Instagram. Mig langaði einfaldlega að læra sem mest og fylgjast með öllu sem var í gangi.

Þótt ég hefði ekki lokið náminu sem mig dreymdi um hafði ég aflað mér þekkingar á námskeiðum og fengið titilinn innanhússráðgjafi. Þegar ég var hvað virkust í þessu leitaði fólk stöðugt til mín í gegnum Instagram, sem ég er ótrúlega þakklát fyrir. Ég fann á því hversu margir höfðu samband og hversu mikil eftirspurnin var að ég væri að gera eitthvað gott.“

Petra segir mann sinn, Kristin Inga, hafa hjálpað sér að sjá að ekki þurfi allt að gerast í dag. Verkefni megi taka sinn tíma. Ljósmynd/Aðsend

Hvað felst í því að vera fagurkeri að þínu mati?

„Góð spurning! Ég get eiginlega ekki sagt til um hvað það er að vera fagurkeri eða hverjir eru fagurkerar. Sjálf geri ég bara það sem mér finnst flott og læt hugmyndirnar ráða för. Ef það er það sem gerir mann að fagurkera, þá er ég skuggalegur fagurkeri,“ segir Petra og hlær.

Ljósmynd/Aðsend

„Blanda af alls konar“

Aðspurð segir Petra ekkert eitt lýsa heimilisstíl sínum. „Núna er þetta blanda af alls konar, kannski hálfgert samansafn af skandinavískum stíl og því sem ég myndi kalla „light boho“. Loftið gefur svo rýminu svolítinn Miðjarðarhafsblæ. Eins og ég hef sagt er ég alltaf að breyta og skipta um. Ég er þó eiginlega hætt að leita að innblæstri og fer meira eftir eigin tilfinningu. Ég fylgi engum reglum um hvað flokkast undir hvaða stíl eða hvað má og má ekki vera,“ segir hún.

Á heimili Petru er greinilega hugað að hverju smáatriði, allt frá húsgögnum og lýsingu til litanna á veggjunum. Núna er hún hrifnust af mildum vegglitum en veit ekki hversu lengi það endist, enda dugleg að skipta um skoðun og breyta til. „Ég er meira fyrir milda tóna í heildina akkúrat núna, en sterkur litur getur verið mjög flottur í skrautmunum, til dæmis svartur blómavasi við mildan vegglit. Fyrir nokkrum árum var allt í dökkum litum.“

Þótt Petra treysti nú meira á eigin tilfinningar gat innblástur af samfélagsmiðlum áður orðið til þess að hún gerði miklar breytingar heima hjá sér. Hún hlær þegar hún rifjar upp hversu ört húsgögnin komu og fóru. „Ég er að segja ykkur það, ég var að skipta út húsgögnum dag og nótt. Þegar ég horfi til baka var þetta bara algjör steypa. Ég gat verið að skrolla á Instagram, séð mynd og hugsað: Ég ætla að gera eitthvað svipað! Svo fór ég á nytjamarkað, smekkhlóð bílinn, kom heim og setti allt upp. Kannski viku seinna hugsaði ég svo: Úff, ég er ekki á þessari lest lengur! Sem betur fer er ég hætt þessu.“

Petra gaf KitchenAid-hrærivélinni nýtt útlit með spreyi. Það þarf ekki alltaf að kaupa nýtt til að breyta til. Ljósmynd/Aðsend

Er eitthvað sem þú vilt alls ekki sjá á þínu heimili?

„Klósettmotta,“ segir Petra án þess að hika. „Ég trúi ekki að það sé verið að selja svoleiðis.“

Ef við kæmum í heimsókn til þín, hvaða rými eða hlutur myndi segja okkur mest um þig?

„Það væri klárlega eldhúsið. Þegar við keyptum húsið okkar sagði ég við manninn minn að við ætluðum að fá okkur steinborðplötu. Ég spurði ekki, var bara frek og sagði: Þetta verður bara að gerast því við erum ekki að fara neitt næstu áratugina! Mér finnst eldhúsið svo fallegt og hagnýtt. Það á enn eftir að klára hitt og þetta sem ég er kannski sú eina sem sé, en það virkar fullkomlega. Ég elska bara litapallettuna og píanóflísarnar.“

Ljósmynd/Aðsend

„Var með „strax-sýki““

Petra sýnir reglulega frá framkvæmdum og breytingum á samfélagsmiðlum. Hún segist þurfa að setja sitt mark á heimilið og hefur gert það alls staðar þar sem hún hefur búið á fullorðinsárum. Aðspurð hvað heilli hana við að umbreyta rýmum segir hún:

„Ég held að það sé einfaldlega að mér líði best í fallegum, snyrtilegum og skipulögðum rýmum. Það róar mig einhvern veginn. Ég er talsvert ofvirk og lít oftast á það sem styrkleika, en ef ég væri ekki búin að setja mitt mark á svæðið væri ég friðlaus. Þannig að þetta er kannski aðallega til að friða sjálfa mig.“

Hún hefur þó lært ýmislegt af framkvæmdunum í gegnum árin og segir eina mikilvægustu lexíuna vera að gefa sér tíma. „Já, það skiptir máli að taka sér tíma og velta hlutunum fyrir sér. Það þarf ekki að gera allt strax. Ég hefði svo verið til í að vera ein af þeim sem geta verið með verkefni í gangi í trilljón ár. En þessi „strax-sýki“ sótti rosalega á mig. Maður vildi helst sjá heildarmyndina í gær, eða að minnsta kosti var ég þannig í langan tíma.

Svo mæli ég ekki heldur með því að skoða of marga valkosti, til dæmis þegar kemur að gólfefnum. Það gerir manni ekkert gott að fara heim með 20 sýnishorn. Það eykur bara valkvíðann.“

Hvar finnst þér þess virði að leggja mest í og hvar má spara?

„Ég myndi ekki spara í gólfefnum eða borðplötunni í eldhúsinu. Þetta eru fletir sem verða fyrir miklu álagi og við viljum að þeir endist. En hvar má spara? Úff, mögulega verð ég „cancelled“ fyrir að segja þetta, en ég myndi ekki eyða í rándýrt þvottahús. Þar hefði ég allt sem ódýrast og einfaldast. Það er ekki einu sinni búið að klára að gifsa loftið hjá okkur þar og samt næ ég alveg að sinna þvottinum.“

Petra hefur alltaf lagt sig fram við að gera barnaherbergin falleg og skemmtileg. Ljósmynd/Aðsend

„Ég ráðlegg öllum að fara og gramsa þar“

Petra lumar á nokkrum ráðum fyrir þá sem vilja gera heimilið fallegra án mikils tilkostnaðar.

„Ég bjó til síðu fyrir nokkrum árum sem hét „Decor, detail and DIY“. Þar sýndi ég mikið frá því hvernig hægt væri að breyta hlutum með málningu eða spreyi.

Byrjaðu á að skoða sölusíðurnar, þar er alltaf hægt að finna eitthvað. Prófaðu líka að auglýsa eftir því sem þig vantar. Kannski er einhver að selja einmitt þann hlut á mun lægra verði en hann kostar nýr.

Svo eru það nytjamarkaðirnir. Að fara þangað er held ég bara lífsmottóið mitt! Ég ráðlegg öllum að fara og gramsa þar. Prófaðu líka að auglýsa skipti. Ef þig langar í nýjan sófa gæti einhver annar verið í sömu hugleiðingum. Kannski getið þið einfaldlega skipt, með lítilli eða engri milligreiðslu.

Það þarf ekki að vera dýrt að breyta til. Ekki mikla hlutina fyrir þér og leitaðu ráða hjá þeim sem geta hjálpað. Ég hef svo oft heyrt fólk segja: Ég veit aldrei hvað passar þarna eða ég gæti aldrei málað þetta borð. En ef þig langar að prófa, láttu þá vaða! Í versta falli málarðu bara aftur yfir borðið sem þú fékkst fyrir lítinn pening.“

Áhuginn á að gefa notuðum hlutum nýtt líf tengist líka draumi sem Petra hefur lengi gengið með. „Mig hefur líka alltaf dreymt um að gera þátt þar sem ég færi á milli nytjamarkaða og breytti heimilum fyrir lítinn pening. Sá draumur er enn til staðar, þannig að Sýn má endilega heyra í mér ef áhugi er fyrir því!“

Hér tónar allt vel saman.

Hér tónar allt vel saman. Ljósmynd/Aðsend

Ertu komin með heimilið eins og þú vilt hafa það eða er næsta verkefni alltaf handan við hornið? Hvað langar þig að gera næst?

„Ég er sagan endalausa. Það er alltaf hægt að gera eitthvað, breyta eða bæta. En við keyrðum svo hratt í gegnum síðustu framkvæmdir að ég gat ekki horft á sparsl eða bor í marga mánuði. Hlutir biðu og þeir bíða enn. Ef ég á að vera alveg hreinskilin fékk ég bara nóg. Mig langaði ekki að gera neitt og gat ekki hugsað um næsta skref. Ég hafði líka verið að í 13 ár, alltaf eitthvað í gangi.

Ég á nægjusamasta mann í heimi. Hann róar mig og minnir mig á að hlutirnir þurfi ekki allir að gerast í dag eða helst í gær, og það er hárrétt. Áður fyrr gat ég varla sofnað ef mynd sem átti að fara upp á vegg var ekki komin upp. Svo áttaði ég mig á því að það skiptir ekki máli. Myndin fer bara upp þegar hún fer upp.

En nú finn ég að ég er að koma til baka og mig langar að klára það sem er á verkefnalistanum. Mig langar að klára loftið, setja á það lista, skraut og renninga. Við erum líka með risastóra lóð og byrjuðum á palli í sumar, svo hann verður í forgangi næsta vor.“

Petra og Kristinn búa með börnunum sínum fjórum á Dalvík.

Petra og Kristinn búa með börnunum sínum fjórum á Dalvík. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅