Rokkstjarnan fyrir dóm vegna kynferðisbrots og heimilisofbeldis

Kristinn H. Guðnason

Þriðjudaginn 10. nóvember 2026 18:52

Tyler gerðist lögráðamaður 16 ára kærustu sinnar. Mynd/Getty

Réttarhöld yfir Steven Tyler, söngvara rokkhljómsveitarinnar Aerosmith, hefjast þann 3. maí næstkomandi. Tyler er kærður fyrir kynferðisbrot og heimilsofbeldi.

Tímaritið Classic Rock greinir frá þessu.

Julia Misley, áður Julia Holcomb, kærði Tyler í desember árið 2022. Það er fyrir kynferðisbrot, heimilisofbeldi og andlegt ofbeldi á sambúðarárum þeirra árið 1973 til 1976. Holcomb var 16 ára þegar sambandið hófst og Tyler 25 ára.

Í upphafi sambandsins gerðist Tyler lögráðamaður Holcomb og flutti hún inn í hús hans í Boston. Sambandið einkenndist af mikilli eiturlyfjaneyslu og ýmislegt gekk á, meðal annars var Tyler sakaður um að þvinga Holcomb að fara í þungunarrof.

Málið hefur mallað lengi í dómskerfinu. Tyler, sem er 78 ára í dag, reyndi að fá því vísað frá þar sem lögræðisaldurinn í Massachusetts fylki hefði verið 16 ára á þessum tíma og þó að hljómsveitin hefði ferðast víða um Bandaríkin, þar á meðal í fylki þar sem lögræðisaldurinn væri hærri, og Holcomb farið með þá ættu Massachusetts-lög að gilda um parið.

Enginn vafi

Dómari féllst upphaflega á frávísunarkröfu Tyler nokkrum kæruliðum en nýr dómari í málinu hefur ákveðið að öll gamla kæran skuli standa. Munu réttarhöldin því hefjast þann 3. maí næstkomandi í Los Angeles.

„Báðir aðilar eiga rétt á því að geta gengið frá málinu með þeirri vissu að allt hafi farið fram með réttum og heiðarlegum hætti, og að enginn vafi leiki á því hvort að gert hafi verið á hlut einhvers,“ sagði nýji dómarinn í málinu, Lawrence Riff.

Þetta er ekki eina gamla kynferðisbrotamálið sem rokkstjarnan hefur staðið frammi fyrir á undanförnum árum. Árið 2023 kærði kona að nafni Jeanne Bellino hann fyrir að hafa þvingað hana til að kyssa sig og káfað á henni á áttunda áratugnum. Árið 2024 var því máli vísað frá vegna þess að það taldist fyrnt.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅