De Bruyne í Bítlaborgina í janúar?
Everton hefur áhuga á Kevin De Bruyne, miðjumanni Napoli. Félagið hefur þegar kannað möguleg skipti samkvæmt ítalska miðlinum Calciomercato.
De Bruyne, sem er 35 ára gamall, gekk í raðir Napoli frá Manchester City sumarið 2025 en hefur ekki náð sér almennilega á strik á Ítalíu. Þá er sagt að nokkur óánægja ríki milli hans og samherja sinna hjá ítalska stórliðinu.
Samningur Belgans við Napoli rennur út næsta sumar en inniheldur hann möguleika á eins árs framlengingu. Ekki er víst að félagið sé til í að missa hann í janúarglugganum.
Everton hefur farið frábærlega af stað á leiktíðinni en er með fremur þunnskipaðan hóp og horfir til þess að styrkja sig í janúar.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗