Erlendur ríkisborgari ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu í Reykjavík

Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nauðgun en meint brot var framið 19. febrúar árið 2022. Maðurinn er sagður hafa haft samræði við konu á heimili hennar í Reykjavík, án hennar samþykkis og með því að beita hana ólögmætri nauðung. Er hann sagður hafa kysst andlit hennar, sogið háls hennar og geirvörtur, dregið niður um hana buxur og haft við hana samræði. Hafi hann engu skeytt um þó að konan hefði sagt honum ítrekað að hún vildi þetta ekki.

Ákærði er sagður hafa nýtt sér yfirburði sína og aðstöðumun gagnvart konunni sem gat ekki spornað við verknaðinum vegna andlegrar fötlunar. Hlaut konan mar á hálsi við aðfarir mannsins. 

Nöfn og aðrar persónupplýsingar hafa verið afmáðar úr þeirri útgáfu ákærunnar sem DV hefur undir höndum. Hins vegar má sjá að ákærði er erlendur ríkisborgari, en ekki kemur fram hvaðan hann er. 

Fyrir hönd brotaþola er gerð krafa um miskabætur að fjárhæð 3,5 milljónir króna. 

Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og var þingfesting laust fyrir síðustu mánaðamót. Þinghöld í málinu eru lokuð. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅