„Þetta hlýtur að hafa verið slagplanið“

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, telur að ríkisstjórnin hafi ætlað að nýta þau tvö ár sem eftir eru af kjörtímabilinu til að koma Íslandi áleiðis inn í Evrópusambandið, hefði þjóðin samþykkt áframhaldandi aðildarviðræður í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Hann segir að hugsanlega hafi staðið til að leggja fram tillögu um stjórnarskrárbreytingu fyrir alþingiskosningarnar 2028 og freista þess að ljúka aðildarferlinu að þeim loknum.

Þetta kemur fram í Spursmálum þar sem Björn ræðir nýútkomna bók sína um aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar og samskipti íslenskra stjórnvalda við Evrópusambandið. Nefnist bókin Þegar Ísland sagði nei.

Þar kemur fram að Björn telur að ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að flýta þjóðaratkvæðagreiðslunni hafi verið hluti af stærri pólitískri áætlun. Hann segir að erfitt sé að finna aðra trúverðuga skýringu á tímasetningu hennar.

Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.

Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra. mbl.is/samsett mynd

Ætluðu að nýta síðari hluta kjörtímabilsins

Björn rekur hvernig atburðarásin hefði að hans mati þróast ef ríkisstjórnin hefði fengið umboð þjóðarinnar til að hefja aðildarviðræður að nýju.

„Þessu er flýtt, tvö ár eftir af kjörtímabilinu. Við verðum dregin inn í þessar viðræður. Það yrði gengið til kosninga árið 2028 og þá hefði þessi stjórn verið búin að komast í náið samband við Evrópusambandið.“

Hann telur að á þessum tíma hefði verið hægt að undirbúa frekari skref í átt að aðild, meðal annars breytingar á stjórnarskránni.

„Það hafði hugsanlega verið lögð fram tillaga um breytingu á stjórnarskránni og það hefði verið borið upp í kosningum 2028 í von um það að sami meirihluti héldi áfram að þeim kosningum loknum og við gengjum í Evrópusambandið.“

Björn segir að þetta sé sú ályktun sem hann dragi af tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og framgöngu stjórnvalda.

„Þetta hlýtur að hafa verið slagplanið. Ef að það er ekki, þá er það ennþá minna hugsað heldur en maður getur ímyndað sér. Þá er þetta bara allt út í loftið eitthvað.“

Hafnar skýringunni um Grænland

Björn gerir jafnframt athugasemdir við þær skýringar sem hafa verið gefnar á því hvers vegna ríkisstjórnin ákvað að flýta þjóðaratkvæðagreiðslunni.

Hann telur ekki trúverðugt að ákvörðunin hafi fyrst og fremst ráðist af ummælum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um Grænland í janúar síðastliðnum.

„Af hverju var verið að flýta þessu? Það er ekki hægt að segja að það sé trúverðug skýring að þessu sé flýtt út af því að Trump hafi farið að tala um Grænland 6. janúar 2026.“

Björn veltir því upp hvort tilgangurinn hafi einnig verið að senda Bandaríkjamönnum pólitísk skilaboð með því að færa Ísland nær Evrópusambandinu.

„Ég meina, af hverju eitthvað orð Trumps um Grænland eigi að verða til þess að við flýtum þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort við ætlum að hefja viðræður við Evrópusambandið upp á nýtt nema að tilgangurinn sé líka að ögra Bandaríkjamönnum.“

„Gluggi hefur opnast“

Björn vísar sérstaklega til þeirrar röksemdar að nýr gluggi hafi opnast fyrir Ísland í samskiptum við Evrópusambandið. Hann telur að með því hafi verið vísað til breyttrar stöðu í alþjóðamálum vegna afstöðu Bandaríkjaforseta til Grænlands.

„Og það hafi líka verið hluti af planinu þegar sagt er: Gluggi hefur opnast. Og hvaða gluggi var það?“

Björn svarar eigin spurningu með því að segja að þar hafi hugsanlega verið átt við tækifæri til að styrkja tengsl Íslands við Evrópusambandið vegna ágreinings um Grænland.

„Það er gluggi sem gerir okkur auðveldara að eiga samskipti við Evrópusambandið og semja við Evrópusambandið af því að Trump er að hreyfa sig á Grænlandi.“

Hann segir að stjórnvöld hafi ekki gert nægilega skýra grein fyrir þessum sjónarmiðum.

„Við höfum ekki fengið skýringu á þessu því að það er nú sérstök list hjá utanríkisráðherranum að fara að tala um eitthvað annað þegar spurt er um konkret úrlausnarefni.“

Leiðangurinn misheppnaðist

Björn segir að í bók sinni leitist hann við að rekja atburðarás Evrópumálsins allt frá árunum 2007 og 2008 og setja hana í sögulegt samhengi.

Að hans mati hafi ríkisstjórninni ekki tekist að ná því markmiði sem hún stefndi að með þjóðaratkvæðagreiðslunni. Hann gagnrýnir jafnframt að eftir niðurstöðuna sé látið eins og atkvæðagreiðslan hafi aðeins verið takmörkuð tilraun til að kanna afstöðu þjóðarinnar.

„Við blasir þegar upp er staðið að leiðangurinn misheppnaðist,“ segir Björn.

Hann bendir á að þjóðaratkvæðagreiðslan hafi kostað umtalsvert fé og kallað á mikla vinnu innan stjórnkerfisins.

„En þetta var miklu meira en það. Hvað kostuðu kosningarnar, hálfan milljarð eða eitthvað?“

Björn telur því að ríkisstjórnin skuldi þjóðinni skýrari svör um tilgang atkvæðagreiðslunnar og þá áætlun sem hafi legið að baki tímasetningu hennar.

Viðtalið við Björn má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan:

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅