Athæfi stórstjörnu veldur reiði - Sakaður um hatur í garð minnihlutahópa

Fagn Felix Nmecha, miðjumanns Borussia Dortmund, hefur vakið hörð viðbrögð hjá stuðningsmönnum félagsins.

Nmecha skoraði bæði mörk Dortmund í 2-1 sigri á Elversberg um helgina og fagnaði með því að benda til himins og taka ímyndaða kórónu af höfðinu.

Fagnið er talið tengjast kristnu hreyfingunni Ballers in God, sem hefur verið gagnrýnd fyrir afstöðu sína til samkynhneigðar, transfólks og þungunarrofs. Stuðningsmannasamtök Dortmund telja boðskapinn ganga gegn gildum félagsins.

Nmecha segir þó um misskilning að ræða og hafnar því að hann hafi ætlað að stuðla að mismunun eða hatri. Ballers in God segist vilja sýna öllum ást og virðingu, óháð trú þeirra.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅