Enn líkur á eldgosi við Sundhnúksgígaröð
Áfram verður fylgst grannt með þróun mála, en núgildandi hættumatskort gildir til 5. janúar 2027, að óbreyttu. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Landris mælist áfram við Svartsengi og bendir til áframhaldandi kvikusöfnunar, og er kvikuhlaup á Sundhnúkagígaröð sem gæti leitt til eldgoss áfram líklegasta sviðsmyndin.
Þetta leiða nýlegar aflögunarmælingar Veðurstofunnar á landrisi við Svartsengi í ljós.
Meðfylgjandi mynd sýnir mælingar frá GPS-stöðinni í Svartsengi frá nóvember 2025 til 9. nóvember 2026, en á grafinu sést að land hefur risið jafnt og þétt undanfarna mánuði.
Það bendir samkvæmt greiningu Veðurstofunnar til þess að kvika safnist enn fyrir á nokkurra kílómetra dýpi undir svæðinu og þrýstingur þar aukist.
Skjálftavirkni hafi mælst mjög lítil undanfarið og teljist eðlileg bakgrunnsvirkni.
Fyrirvari stuttur
SENG-plate-yearMælingar frá GPS-stöðinni í Svartsengi (SENG) síðastliðið ár. Efstu tvö gröfin sýna færslur til norðurs og austurs en neðsta grafið sýnir lóðrétta færslu. Þar sést áframhaldandi landris.
„Á meðan kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi er líklegasta sviðsmyndin að kvika hlaupi yfir í Sundhnúkagígaröðina,“ segir í uppfærðu mati Veðurstofunnar.
„Slíkt kvikuhlaup gæti leitt til eldgoss. Ekki er hægt að segja til um hvenær næsti atburður verður og áfram þarf að gera ráð fyrir að fyrirvari geti orðið stuttur.“
Áfram verður fylgst grannt með þróun mála, en núgildandi hættumatskort gildir til 5. janúar 2027, að óbreyttu. Ef breytingar verða á virkni eða ný gögn gefa tilefni til kann þó að vera að hættumatið verði endurskoðað áður en gildistímanum lýkur.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
