Neuer meiddur og hvattur til að hætta

Manuel Neuer er að glíma við meiðsli.

Manuel Neuer er að glíma við meiðsli. AFP/Karl-Josef Hildenbrand

Sepp Maier, fyrrverandi markvörður Bayern München og þýska landsliðsins, telur að Manuel Neuer ætti að leggja hanskana á hilluna næsta sumar eftir að Neuer meiddist um helgina.

„Ég myndi segja við hann: „Nú er komið gott, Manu!“ Þú hefur unnið allt og þarft ekki lengur að sanna neitt fyrir neinum,“ sagði Maier við Sport1.

Neuer, sem er fertugur, reif sin að hluta í hægri fæti í 2:1-sigri Bayern á Mainz á laugardag og er búist við að hann verði frá keppni fram í janúar.

Maier lýsti Jonas Urbig sem framtíðarmarkverði Bayern en sagði að heill heilsu væri Neuer enn á meðal þeirra bestu:

„Það gagnast lítið að vera í heimsklassa ef líkaminn getur ekki lengur fylgt eftir.“

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅