Þurfum að sýna að við eigum tilkall til varnar

„Þú þarft að sýna fram á að þú eigir tilkall til þess að hin löndin sendi unga fólkið sitt til þín ef það þarf að verja þig,“ segir Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Vörðu, hugveitu um þjóðaröryggi, en hann er gestur Dagmála í dag.

Hann segir að þótt Ísland sé lítið land án eigin hers verði Íslendingar engu að síður að leggja sitt af mörkum til sameiginlegs öryggis.

Kristinn bendir á að önnur norræn ríki hafi stóraukið útgjöld til eigin varna og stuðning við Úkraínu, en Ísland hafi ekki fylgt þeim eftir í sama mæli.

„Við getum ekki bara setið hjá sem eitthvað súkkulaði í heimspólitík eða alþjóðamálum heldur þurfum við að stíga upp og leggja okkar af mörkum,“ segir Kristinn.

Hann segir að Íslendingar verði að sýna að þeir séu reiðubúnir að axla ábyrgð á sameiginlegu öryggi ef þeir ætli að geta treyst á aðstoð bandamanna þegar á reynir.

Kristinn Árni Lár Hróbjartsson er gestur Dagmála í dag.

Kristinn Árni Lár Hróbjartsson er gestur Dagmála í dag. mbl.is/Kristófer Liljar

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅