Miklar umferðartafir í Ártúnsbrekku
Innlent | mbl | 10.11.2026 | 18:01
Miklar umferðartafir eru nú í Ártúnsbrekku í vesturátt.
Að sögn sjónarvotta mbl.is í umferðinni mátti rekja tafirnar til umferðaróhapps, sem var við mislægu gatnamótin við Elliðaárnar. Var dráttarbíll á staðnum.
Umferðin var annars óvenjuþung síðdegis.
Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir í samtali við mbl.is að aukinn umferðarþungi geti tengst vegavinnu sem átti sér stað í dag.
Samkvæmt vef Vegagerðarinnar voru ramparnir á Víkurvegi inn og út úr Grafarholti malbikaðir og voru lokaðir.
„Síðdegisumferðin höndlar ekki svona mál,“ segir Árni að lokum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/12/1691261.jpg)