Miklar umferðartafir í Ártúnsbrekku

Innlent | mbl | 10.11.2026 | 18:01

Umferð í Ártúnsbrekkunni um klukkan 18 í dag.

Umferð í Ártúnsbrekkunni um klukkan 18 í dag. Ljósmynd/Vegagerðin

Miklar umferðartafir eru nú í Ártúnsbrekku í vesturátt.

Að sögn sjónarvotta mbl.is í umferðinni mátti rekja tafirnar til umferðaróhapps, sem var við mislægu gatnamótin við Elliðaárnar. Var dráttarbíll á staðnum. 

Umferðin var annars óvenjuþung síðdegis.

Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir í samtali við mbl.is að aukinn umferðarþungi geti tengst vegavinnu sem átti sér stað í dag. 

Samkvæmt vef Vegagerðarinnar voru ramparnir á Víkurvegi inn og út úr Grafarholti malbikaðir og voru lokaðir. 

„Síðdegisumferðin höndlar ekki svona mál,“ segir Árni að lokum.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅