Svala Björgvinsdóttir sterkasta kona Íslands

Keppendurnir á mótinu.

Keppendurnir á mótinu. Ljósmynd/SKÍ

Svala Björgvinsdóttir vann titilinn Sterkasta kona Íslands í fyrsta sinn á laugardaginn. Hún hafði betur eftir harða keppni við Berglindi Rós en Svala hefur aðeins æft aflraunir í tvö ár.

Sjö konur kepptu á mótinu sem haldið var í Thor’s Power Gym í Kópavogi. Svala hlaut 32 stig, Berglind Rós Bergsdóttir varð önnur og Erika Mjöll Jónsdóttir þriðja.

Keppt var í fimm greinum: öxulréttstöðulyftu, drumbalyftu, rammagöngu, helluburði og atlassteini yfir rá.

Veiga Dís Hansdóttir stóð fyrir keppninni annað árið í röð. Hún hefur sjálf keppt í kraftlyftingum og aflraunum og vill með mótshaldinu efla íþróttina og auka sýnileika kvenna sem hana stunda.

„Það skiptir mig miklu máli að konur í aflraunum fái tækifæri til að keppa á veglegu móti og sýna hvað þær geta,“ segir Veiga Dís í tilkynningu frá mótshöldurum.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅