Skriðu fram hjá leysigeislunum og hirtu gullið

Þó margir kunni að ímynda sér að eftirstandandi vöruframboð sé rýrt þegar þrjátíu milljóna króna virði af skarti hafi verið stolið segir Jón Tryggvi að enn sé nóg eftir af öllu fyrir áformaðan tilboðsdag á morgun – nema gulli. mbl.is/Karítas

Líklegt er að innbrotsþjófar sem létu greipar sópa um verslunina Gullsmiðinn hafi skriðið um gólf Mjóddarinnar til þess að forðast að snerta leysigeisla sem virkjað hefðu öryggiskerfið að mati eigandans Jóns Tryggva Þórssonar, sem lýsir líklegri atburðarás eins og skartgriparáni úr bíómynd.

Þó margir kunni að ímynda sér að eftirstandandi vöruframboð sé rýrt þegar þrjátíu milljóna króna virði af skarti hafi verið stolið segir Jón Tryggvi í samtali við mbl.is að enn sé nóg eftir af öllu fyrir áformaðan tilboðsdag á morgun – nema gulli.

 „Það var í raun og veru öllu gullinu úr búðinni stolið, en ég er náttúrulega með fullt af úrum og silfurskartgripum í búðinni líka, og þeir höfðu engan áhuga á því,“ segir hann. 

„Svo er ég líka með mikið af skarti sem er gullhúðað, og skart af mörgum gerðum frá flottum merkjum.“

Afhjúpað leysigeislana „eins og James Bond“

Þar sem gullhúðaða skartið varð eftir á meðan þjófarnir létu greipar sópa um gullið virðist því vera að þjófarnir hafi haft næga þekkingu á skartgripunum til þess að sneiða algjörlega hjá gullhúðuðu skarti, þó það líti út eins og gull.

Fyrst þjófarnir létu gullhúðuðu skartgripina vera, þó þeir kunni að líta út eins og raunverulegt gull, heldurðu að þeir hafi þá talsvert vit á skartgripum?

„Já, þeir virtust greinilega hafa mikið vit, og þekkingu á þessu,“ segir Jón Tryggvi.

„Við höfum verið að ræða þetta okkar á milli og einn okkar heldur að þeir hafi verið með einhvers konar vasaljós sem myndi sýna hvar bjarminn af laser-tækinu okkar og þeir hafi þannig getað skannað og séð hvar ljósskanninn var ekki að nema, og sneitt fram hjá því.“ 

„Þetta er bara eins og bíómyndunum, eiginlega. Bara eins og James Bond.“

Virtust ekkert stressaðir

Málið er enn til skoðunar hjá lögreglu, en Jón Tryggvi fór á fund hennar í morgun og fékk veður af því hvar rannsóknin stæði. Þó lögregla hafi ekki séð sér fært að sýna honum myndbandsupptökur úr öryggismyndavélum hafi hann þó fengið að heyra lýsingu á því. 

Þar hafi lögregla lýst því að mennirnir hafi notað stærðarinnar hamar til þess að brjóta gler verslunarinnar, og haft þýfið á brott í Bónuspoka.

„Og þeir höfðu greinilega góðan tíma,“ segir Jón Tryggvi. „Þeir fóru fyrst, og komu síðan aftur, og virtust ekkert vera stressaðir þegar þeir voru búnir að læra á kerfið.“

Til stendur að verslunin opni að nýju á morgun, en þó verður sáralítið af gulli til sölu hjá Gullsmiðnum. mbl.is/Karítas

Jón Tryggvi segir ýmislegt benda til þess að þjófarnir hafi smeygt sér framhjá leysigeislunum, sem virkjað hefðu þjófavarnarkerfi verslunarinnar, með því að skríða á gólfinu á meðan á innbrotinu stóð.

„Ég ímynda mér að fyrst hafi þeir brotið rúðuna í útstillingarglugganum þar sem mikið af gullskartgripunum eru geymdir, og uppgötvað að kerfið hefur ekki farið í gang við það, og hafa þá greinilega notað einhvers konar vasaljós til að sjá að geislinn nær ekki fyrir framan innréttinguna,“ segir hann.

Starfsmenn verslunarinnar hafi gert tilraun til að sannreyna þá tilgátu.

„Við kveiktum á kerfinu, og skriðum meðfram innréttingunni og þá kviknaði ekkert á henni. En svo um leið og ég stóð upp fór kerfið í gang, sko.“

Þannig að þjófarnir hafa þá mögulega skriðið þarna inn og haldið sig á gólfinu?

„Já, já. Brutu bara innréttinguna og glerið að framanverðu og hrifsuðu allt út og skriðu svo bara til baka.“

Opna verslunina á morgun

Þá hafi aðrir verslunareigendur í Mjóddinni verið fúsir til að afhenda upptökur af eftirlitsmyndavélum og rétta hjálparhönd, og umsjónarmaður svæðisins verið liðtækur í því að fara yfir þær og kanna allar óeðlilegar uppákomur. 

Stefnt er að því að verslunin verði opin á morgun í tilefni af degi einhleypra (11/11), og stendur enn sem áður til að skartið verði á sérstöku tilboði.

„Við erum bara á fullu að reyna að gera þetta klárt, og ætlum að bjóða viðskiptavinum á góð kjör á ellefu-ellefu deginum.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅