Allison tjáir sig um framtíðina

Alisson Becker, markvörður Liverpool, vill vera áfram hjá félaginu. Samningur hans rennur út næsta sumar.

Brasilíumaðurinn, sem er 34 ára gamall, hefur verið hjá Liverpool frá árinu 2018 en framtíð hans er nú óljós. Umboðsmaður hans hefur átt í viðræðum við félagið um nýjan samning.

„Ég vil vera áfram. Ég er ánægður hér og fjölskyldan mín líka. Þetta veltur á ýmsu en minn vilji er að vera áfram,“ segir Alisson.

„Ég er enn hungraður í titla og vil halda áfram að spila á hæsta stigi eins lengi og ég get.“

Alisson íhugaði að ganga í raðir Juventus fyrr á árinu en ákvað að vera áfram hjá Liverpool. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅