Ók á rúmlega tvöföldum hámarkshraða
Innlent | mbl | 10.11.2026 | 17:33
Ók 53 km hraðar en leyfilegur hámarkshraði. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Lögreglan stöðvaði í dag ökumann fyrir of hraðan akstur en hann ók á 103 km hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 km.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu yfir mál sem áttu sér stað á tímabilinu frá klukkan 5 til 17 í dag.
Þá voru jafnframt höfð afskipti af ökumanni sem við nánari athugun reyndist aka undir áhrifum fíkniefna.
Að auki var brotist inn í vinnuskúra og verkfærum stolið þaðan. Er það mál til rannsóknar.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗