Helga náði bestum árangri Íslendinga
Þrír íslenskir hlauparar kepptu á Norðurlandamótinu í víðavangshlaupum í Växjö í Svíþjóð. Helga Lilja Maack, Davíð Freyr Magnússon og Sindri Karl Sigurjónsson, sem öll keppa fyrir ÍR, tóku þátt í fimm kílómetra hlaupi í flokki 20 ára og yngri.
Helga Lilja hafnaði í 15. sæti. Hún var í baráttu við dönsku keppendurna fram á þriðja hring en þurfti þá að gefa eftir. Davíð Freyr og Sindri Karl höfnuðu í 22. og 26. sæti.
Keppendur létu vel af aðstæðum og brautinni, sem var hóflega hæðótt. Sandkaflar reyndust þó krefjandi rétt áður en hlaupararnir tókust á við endasprett upp brekku.
Vésteinn Hafsteinsson, sem hefur verið búsettur í Växjö um árabil, mætti á mótið og hvatti íslenska hópinn.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗