Eimskip hagnaðist um 2,1 milljarð
Skipafélagið Eimskip var rekið með ríflega 2,1 milljarðs króna hagnaði á þriðja fjórðungi ársins, eða 15,5 milljónum evra.
Eignir félagsins í lok tímabilsins námu 737 milljónum evra eða 101 milljarði íslenskra króna.
Eigið féð nemur nú 313 milljónum eða 43 milljörðum og eiginfjárhlutfall er 42,5%.
Í tilkynningu segir að afkoman hafi verið góð á fjórðungnum og bati milli ára þrátt fyrir krefjandi ytra umhverfi vegna mikilla kostnaðarhækkana út af þróun olíuverðs. Aukið flutningsmagn, sterkari grunnrekstur og ávinningur af hagræðingaraðgerðum hafi stutt við bætta afkomu allra starfsþátta félagsins.
Tekjur jukust um 19,4%
Tekjur á þriðja ársfjórðungi jukust um 19,4% frá sama tímabili í fyrra. Tekjuvöxturinn skýrist einna helst af auknu flutningsmagni og hærri alþjóðlegum flutningsverðum sem endurspegla verulega hækkun olíuverðs samkvæmt tilkynningunni.
„Tekjur í siglingakerfinu jukust um 13,8% og flutningsmagn um 6,8%. Sterkur útflutningur sjávarafurða og eldisfisks frá Íslandi og Færeyjum studdi við magn-og tekjuvöxtinn, meðal annars vegna nýrrar beinnar tengingar milli Þórshafnar og Rotterdam en þjónustan hófst í ágúst síðastliðnum.“
Tekjur í annarri flutningatengdri þjónustu jukust um 14,4%, einkum vegna aukinna umsvifa í landflutningum á Íslandi samkvæmt tilkynningunni. Þá var afkoman studd af aukinni vöruhúsastarfsemi, meðal annars vegna nýrrar kæli- og frystigeymslu í Danmörku og bættri afkomu af hafnarstarfsemi. Umboðsþjónusta skilaði góðri afkomu þrátt fyrir færri komur skemmtiferðaskipa en á sama tímabili í fyrra.
Tekjur í alþjóðlegri flutningsmiðlun jukust um 30%, drifin áfram af 11,2% aukningu flutningsmagns og verulega hærri alþjóðlegum flutningsverðum. Vöxturinn var sérstaklega sterkur á leiðum tengdum Asíu að því er tilkynningin greinir frá.
Jákvæð þróun
Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri fyrirtækisins segist í tilkynningunni að félagið sé heilt yfir ánægt með afkomu þriðja ársfjórðungs. „Jákvæð þróun frá öðrum ársfjórðungi hélt áfram og afkoman batnaði verulega frá sama tímabili í fyrra. Það er ánægjulegt að sjá að þær fjölmörgu aðgerðir sem við höfum ráðist í eru að skila skýrum árangri.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗