Kynnti sér Breivik í aðdraganda skotárásarinnar í Kraká

Sex létu lífið og fjöldi manna særðist í skotárás í Kraká í Póllandi á laugardaginn. Árásarmaðurinn var meðal særðra en lést af áverkum sínum á sjúkrahúsi í gær. Skotmaðurinn hét Michał Oksiński og var 24 ára gamall. Skömmu áður en hann framdi skotárásina myrti hann foreldra sína og yngri systur á heimili fjölskyldunnar í Ostrowiec Świętokrzyski.

Málið hefur sett allt á hliðina í Póllandi og víða á samfélagsmiðlum en mikil upplýsingaóreiða einkennir umræðuna þar sem menn keppast við að eigna skotmanninum pólitíska afstöðu.

Nokkrum klukkustundum eftir árásina sagði innanríkisráðherra Póllands, Marcin Kierwiński, á blaðamannafundi að allt virtist benda til þess að Oksiński hefði sótt innblástur til hugmyndafræði öfga-hægrisins. Vísbendingar hafi fundist um að skotmaðurinn hafi verið með öfgafull þjóðernissinnuð viðhorf. Tók ráðherrann þó fram að þetta hefði þó ekki verið staðfest enda rannsókn á frumstigi.

Þetta setti allt á hliðina og fljótlega fóru að birtast skjáskot af ýmsu tagi sem áttu að sanna að Oksiński hefði þvert á móti verið öfga-vinstrimaður. Kierwiński virðist ekki hafa reiknað með þessum viðbrögðum en hann ítrekaði í viðtali að hann hafi tekið fram að fullyrðing um skoðanir skotmannsins þarfnaðist frekari rannsóknar; hann hafi aldrei ætlað sér að valda fjaðrafoki. Þetta ákváðu margir að túlka sem svo að ráðherrann væri að draga í land með fullyrðingu sína. Færslur birtust á samfélagsmiðlum þar sem fullyrt var að ráðherrann hefði viðurkennt rangfærslu og beðist afsökunar. Þær færslur fá enga stoð í viðtalinu við ráðherrann.

Saksóknari sagði í samtali við fjölmiðla um helgina að ótímabært væri að fullyrða nokkuð um pólitískar skoðanir Oksiński en margir töldu það styðja enn frekar við þá kenningu að ráðherrann hefði ekkert fyrir sér þegar hann talaði um öfgafullar hægriskoðanir.

Með áhuga á Breivik

Nú er staðan önnur. Dómsmálaráðherra Póllands, Waldemar Zurek, hefur upplýst að skotmaðurinn hafi mögulega verið heillaður af nýnasistanum og hryðjuverkamanninum Anders Breivik sem banaði 77 ungmennum á norsku eyjunni Utøya árið 2011. Zurek sagði Oksiński hafa sýnt mikinn áhuga á alþjóðlegum hreyfingum fjarhægrimanna. Við rannsóknina hafi fundist mjög áreiðanleg gögn sem benda til þess að Oksiński hafi framið glæpi sína undir áhrifum öfgahægriróttækni og vegna geðrænna vandamála.

Eins hefur komið fram að á heimili skotmannsins fannst svokallaður Gadsden-fáni, en hann mun vera notaður af öfgamönnum í allar áttir. Undanfarið hafa það einkum verið fjarhægrimenn sem fáninn er tengdur við en sögulega hefur hann verið tengdur við ýmsar hreyfingar sem eiga það sameiginlegt að upplifa að á þeim sé troðið eða að þeim þrengt í samfélaginu. Fáninn einn og sér er því hálfkveðin vísa. 

Það að hafa google-að Breivik þýðir í rauninni ekkert heldur eitt og sér, enda gæti allt eins verið að aðili sem ætlar sér að fremja fjöldamorð hefði ástæðu til að kynna sér voðaverk Breiviks. Eins ættu lesendur að fara varlega í því að taka mark á myndum sem ganga nú á samfélagsmiðlum. Einhverjar þeirra koma alfarið frá gervigreindinni, sumum hefur verið breytt til að láta líta út fyrir að Oksiński tengist tilteknum stjórnmálahreyfingum eða hugmyndafræði og aðrar hafa verið slitnar úr samhengi eða sagðar sanna eitthvað sem þær gera ekki. Oksiński  virðist hafa átt tvo Facebook-reikninga sem var eytt fljótlega eftir skotárásina. Margar þeirra mynda sem í dreifingu eru núna var ekki að finna á þessum reikningum og þeir sem fyrst deildu þeim virðast hafa tengsl við upplýsingaóreiðuherferðir. Sjá nánar hjá pólsku staðreyndavaktinni Demogog, staðreyndavaktinni What The Fact og umfjöllun DW

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅