Meintur banamaður Kirk fyrir dóm 2028

Val á kviðdómendum í máli gegn Tyler Robinson hefst 21. júní 2028. AFP

Tyler Robinson, sem grunaður er um að hafa orðið Charlie Kirk að bana, á að koma fyrir dóm vegna morðsins sumarið 2028. 

Þetta staðfesti Tony Graf, dómari í Utah-ríki Bandaríkjanna, í gær.

Mun val á kviðdómendum hefjast 21. júní 2028 og þá hafa 105 dagar verið teknir frá fyrir meðferð málsins. 

Tekist á um tímasetningu réttarhaldanna

Ákvörðun dómarans kemur í kjölfar þinghalds í október þar sem hann hlýddi á tillögur saksóknara og verjenda að tímaáætlun réttarhaldanna.

Í aðdraganda þinghaldsins gagnrýndi ekkja Kirks, Erika Kirk, harðlega beiðni verjenda um að val kviðdómenda myndi hefjast á seinni hluta ársins 2029 og sagði hana „gróflega úr hófi“ og krafðist þess að réttarhöldin yrðu haldin árið 2027.

Saksóknarar höfðu farið fram á að réttarhöldin myndu hefjast í janúar 2028.

Hyggjast krefjast dauðarefsingar

Kirk var skotinn til bana er hann ávarpaði fjölmennan hóp fyrir utan Utah Valley-háskólann þann 10. september 2025. Hann var 31 árs gamall. 

Robinson neitar sök í málinu og hafa saksóknarar lýst því yfir að þeir hyggist krefjast dauðarefsingar yfir Robinson.

Hann er ákærður fyrir morð að yfirlögðu ráði við sérstaklega vítaverðar aðstæður, meðferð skotvopns, ofbeldisbrot að barni viðstöddu, að hafa áhrif á vitni og að hindra framgang réttvísinnar. 

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅