Góðar fréttir af Kompany

Vincent Kompany, stjóri Bayern Munchen, er mættur aftur á æfingasvæði félagsins eftir að hafa hnigið niður á æfingu í síðasta mánuði.

Belginn var fluttur á sjúkrahús 23. október eftir að hafa hnigið niður á æfingu varaliðs Bayern. Í ljós kom að hann þjáðist af ertingu í heilahimnum í kjölfar veirusýkingar.

Bayern greindi frá því í dag að Kompany væri á batavegi og hefði snúið aftur á æfingasvæðið. Þar er hann einnig í endurhæfingu vegna axlarmeiðsla.

Aaron Danks, aðstoðarþjálfari Bayern, hefur stýrt liðinu í fjarveru Kompany með góðum árangri.

Ekki hefur verið staðfest hvenær Kompany snýr aftur á hliðarlínuna en Bayern mætir Köln 20. nóvember, eftir landsleikjahléið.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅