Davíðstíminn: Hrunið kallaði það versta fram í Davíð – en hann átti líka sínar góðu hliðar
Í hruninu gekk mikið á, vinabönd brustu og komust jafnvel á aftur og ýmsir sýndu alls ekki sínar bestu hliðpar. Meðal þeirra var Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóri. Davíð sýndi sínar verstu hliðar og hótaði mönnum meðal annars útskúfun, bannfæringu. Davíð átti sér fleiri hliðar, mýkri og viðkunnanlegri. Meira bar á betri hliðunum á fyrri hluta ferils hans ein þeim síðari. Reynir Traustason fékk eitt sinn þau skilaboð frá Davíð að hann hefði verið alveg til í að ráða hann í vinnu, ef hann bara væri ekki svona mikið ólíkindatól. Reynir og Jón Trausti, sonur hans, eru höfundar bókarinnar Davíðstíminn, sem kom út á dögunum. Þeir feðgar eru gestir Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
Reynir: „Svo er náttúrlega áberandi á þessum tíma, það eru vinaböndin sem bresta og vinir verða óvinir og allt þetta. Það er nú þekkt þessi sena í Seðlabankanum þegar Davíð hundskammar Tryggva Þór Herbertsson, efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar, sem sagði: „Heyrðu, ef þið farið í þessa þjóðnýtingu þá hrynur allt.“ Hann vissi auðvitað sem var að þetta var allt samtvinnað. Þetta var krossveðsett og Davíð bregst mjög reiður við og sagði við hann að hann yrði gerður útlægur ef hann héldi áfram þessum málflutningi, fengi aldrei vinnu hér á landi og Tryggvi er meðal viðmælenda þannig að hann er orðinn þarna einhver óvinur ríkisins, nema þeir sættast svo eftir að Tryggvi er kosinn sem þingmaður fyrir Norðaustur. Þá ná þeir saman og setja niður og sættast að einhverju marki en það er þessi mikla heift og það eru þessi vinabönd sem bresta meira og minna en sumt heldur jú alla leið. Hannes Hólmsteinn.“
Jón Trausti: „Hluti af þessum kontrasti sem er svo áhugaverður í þessari sögu er bara hvernig við sjáum á aðra röndina grínið notað og hina röndina reiðina bresta fram. Þetta er mjög sterkt kontrast í fari Davíðs sem stjórnmálamanns. Ég held hann hafi nú náð lengra með kímninni heldur en bræðinni.“
Ég held að það þurfi ekkert að velta vöngum yfir því, ég held að það sé rétt. En svona á þessum nótum, þið komið því dálítið vel að Davíð hafði einmitt mjög svona kómíska og hlýja hlið og ég var í útgáfuhófinu þar sem að það sem þú sagðir frá óförum hans sem ökumanns og svona skemmtilegum atvikum tengdum því.
Reynir: „Já, já, þetta voru skemmtilegar sögur, dýravinurinn og greinilega ekki góður ökumaður. Mikill dýravinur og það er náttúrlega var þekkt þegar Tanni var svona einn þekktasti hundur Íslands, hundurinn hans, og hann var að gefa máfunum þarna í götunni og svona. Það var ekkert vinsælt. Hafði átt villikött sem vin, skógarkött.
En það eru svona, jú, jú, það eru blæbrigðin í þessu. Maðurinn er auðvitað margbrotinn og margt fallegt að segja um hann eins og á hinn bóginn. Þetta snerist svolítið um að spegla manninn og þar með þennan tíma því að við vitum alveg að á þessum tíma sem að þetta var að það eimir enn þá eftir af þessu að menn vildu fara varlega, ekki styggja okkar mann eins og einn hans nánasti samherji sagði gjarnan þegar var einhver umræða. Þá var svarið: Nei, okkar maður, honum mun ekki líka þetta.
Og þá vissu þeir sem sátu við borðið: Hvað gerum við þá? Þannig að það er ekki allt sem gerist sem er svolítið svona skakkt í öllu þessu. Það er ekki nein tilskipun, það er bara: Hvað heldur þessi embættismaður að falli í kramið? Það sem ég geri.“
Já, já. Þetta er rétt. Nú, en það er ein saga sem mér fannst dálítið skemmtileg, hann var að flýta sér á ríkisstjórnarfund og verður fyrir því óhapp að keyra aftan á bíl.
Reynir: Já, já, það er ein af þessum fjölmörgu sögum, það er kona sem er ökumaðurinn hinum megin. Hann biðst innilega afsökunar á þessu eins og gerist náttúrlega. Ef maður gerir eitthvað þá biðst maður afsökunar. Og það er, hann er að flýta sér og segir: Heyrðu, þú kemur bara í ráðuneytið á morgun og er það ekki? Ertu ekki til í að koma bara og við göngum frá þessu þar? Jú, jú, konan segir það og kemur. Og það er búið að gera allt klárt. Það er verkstæðið tilbúið og aftur biðst Davíð afsökunar og konan bara fer út í lífið og heldur að þar með sé hennar samskiptum og forsætisráðherra lokið.
Nema svo kemur pósturinn í desember. Það kemur pakki til hennar, bók, Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar, árituð. Gaman að rekast á þig, kær kveðja, Davíð Oddsson. Þetta var alveg, hann, hann var svona sko. Og ég segi reyndar frá því í eftirmála af mínum kynnum af honum þegar hann sagði að ég væri þrefaldur í roðinu.
Og einhvern tímann fékk ég skilaboð frá honum um að hann hefði alveg viljað fá mig í vinnu ef ég væri ekki svona mikið ólíkindatól. Ég er nú ekkert að segja hver bar mér þau boð en það kom alveg úr innsta hring að ef ég væri ekki svona mikið ólíkindatól þá stæðu mér opnar dyr.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗