Fúgur Bachs og allar þrautir fingranna

"Mér finnst fátt notalegra en að spila Bach," segir Ólafur hér á vinnustofu sinni við flygilinn, sem er sögufrægur og er frá árinu 1927. Á hverju þriðjudagskvöldi síðasta áratuginn hefur Ólafur haldið tónleika í Dómkirkjunni í Reykjavík þar sem hann leikur nokkrar af prelúdíum og fúgum Jóhanns Sebastíans Bachs hverju sinni. Dyrnar eru opnaðar rétt fyrir klukkan 20 en þá stundvíslega er fyrsti tónninn sleginn á Bösendorfer, nýjan flygil sem kom í Dómkirkjuna fyrr á þessu ári. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

„Ég hef leikið flestar af prelúdíum og fúgum Bachs í Dómkirkjunni. Sumar er ég að vinna en samt á ég nokkrar óspilaðar ennþá, mér liggur ekkert á. Mér finnst ég oft gera betur en áður þegar ég er að læra verkin upp aftur. Þetta er líka nokkuð krefjandi; í rauninni eru í þessum verkum nánast allar þær þrautir fingranna sem píanóleikari getur glímt við,“ segir Ólafur Elíasson.

Tónverkin eru alls 96

Á hverju þriðjudagskvöldi síðasta áratuginn hefur Ólafur haldið tónleika í Dómkirkjunni í Reykjavík þar sem hann leikur nokkrar af prelúdíum og fúgum Jóhanns Sebastíans Bachs hverju sinni.

Verk þessi, sem eru 48 talsins í tveimur bindum, það er samtals 96 prelúdíur og fúgur, samdi Bach á fyrri hluta 18. aldar. Meðal tónlistarmanna eru þessir bálkar Bachs gjarnan nefndir „Gamla testamentið“, enda af mörgum taldir undirstaða alls hljómborðsleiks og jafnvel allrar vestrænnar tónlistar.

Ólafur Elíasson hóf ungur píanónám hjá Bjarna Jónatanssyni. „Bjarni var frábær kennari sem kveikti í mér áhuga á Bach. Raunar er Bach brautryðjandi á þeim tíma þegar verið var að kanna möguleika á því að flytja tónlist á milli tóntegunda á hljóðfærinu. Þar ber að nefna að hrein náttúruleg tónbil ganga ekki stærðfræðilega upp í 12 tóna kerfi á hljómborði,“ segir Ólafur og heldur áfram:

Draumurinn rættist

„Stilla verður öll tónbil örlítið flöt eða sneiða örlítið af þeim svo unnt sé að leika í öllum 24 dúr- og molltóntegundunum án þess að falskt hljómi. Því má segja að öll nútímapíanó séu stillt fölsk. Bach nýtti sér þessa nýju tækni við stillingu hljómborða og varð fyrstur í heiminum til að semja og gefa út heildstætt safn verka þar sem hann notar allar 24 tóntegundir kerfisins með ótrúlegum glæsibrag.“

Ólaf dreymdi ungan um að leika allar prelúdíur og fúgur Bachs opinberlega. „Fyrir ungan mann í námi var þetta óraunhæft, en draumurinn rættist síðar,“ segir Ólafur, sem stundaði tónlistarnám hér heima og síðar framhaldsnám í Lundúnum og París. Hann hefur um árabil stundað kennslu, lengst af í klassískum píanóleik. Síðustu árin hefur hann svo starfrækt Miðstöðina í Grafarvogi þar sem hann kennir ungum tónlistarmönnum að leika popptónlist í hljómsveitum.

„Það að kenna krökkum popptónlist í hljómsveitum er líklega merkileg forsenda þess að ég hef orku í að leika píanótónlist Bachs í hverri einustu viku,“ segir Ólafur. „Píanókennsla þar sem maður situr yfir klassískri tónlist marga klukkutíma á dag í sama sætinu og horfir á fingur nemenda sinna er vissulega mjög krefjandi. Því getur verið nokkuð erfitt að æfa sig sjálfur í klassíkinni eftir slíkan vinnudag. Í núverandi starfi kem ég hins vegar ferskur að píanóinu eftir starfið með unglingunum, sem er mjög fjölbreytt og allt annars eðlis.“

Við sitjum í stúdíói Miðstöðvarinnar þar sem Ólafur situr við Steinway-flygil sinn frá árinu 1927. Sá var upphaflega keyptur til landsins af Tónlistarfélaginu í Reykjavík og var í áratugi í notkun hjá Ríkisútvarpinu. Nokkur ár eru síðan Ólafur eignaðist gripinn, sem hann lét endurgera hjá Steinway-verksmiðjunum í Hamborg, enda vill hann meina að fá hljóðfæri hljómi fallegar en þessi flygill.

Leikið á Bösendorfer

Síðdegis á þriðjudögum kveðst Ólafur alltaf slaka vel á fyrir tónleika og mæta svo tímanlega í Dómkirkjuna. Dyrnar eru opnaðar rétt fyrir klukkan 20 en þá stundvíslega er fyrsti tónninn sleginn á Bösendorfer, nýjan flygil sem kom í Dómkirkjuna fyrr á þessu ári. Tónleikarnir taka um það bil hálftíma og eru ágætlega sóttir, ekki síst á sumrin þegar fjöldi ferðamanna er í bænum. „Í annan tíma geta verið færri, en þá finnst mér fátt notalegra en að spila Bach. Sérstaklega á vetrarkvöldum þegar vindur gnauðar á gluggum,“ segir Ólafur Elíasson.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅