Sigríður Rakel hætt hjá Kosmos

Sigríður Rakel Ólafsdóttir er hætt hjá Kosmos.

Sigríður Rakel Ólafsdóttir er hætt hjá Kosmos. Ljósmynd/LinkedIn

Það eru miklar hræringar á vinnumarkaði um þessar mundir. Sigríður Rakel Ólafsdóttir er hætt hjá fjarskipafélaginu Kosmos og segist vera reynslunni ríkari. Hún var áður markaðsstjóri Öskju og var vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni um tíma. 

„Í upphafi árs fékk ég það tímabundna verkefni í hendurnar að taka þátt í að stofna nýtt fjarskiptafélag inn á rótgróinn og sterkan samkeppnismarkað.

Saga minni fjarskiptafélaga sem hafa gert tilraun til að koma inn á þennan markað hefur verið þyrnum stráð og flest þeirra hafa ekki verið langlíf,“ segir hún í færslu á LinkedIn. Hún segir að félagði hafi farið ótroðnar slóðir og hafi gert hlutina öðruvísi.  

„Að bjóða fólki gagnsærri og nútímalegri þjónustu þar sem sjálfvirknivæðing, stafræn upplifun og gervigreind keyra viðskiptamódelið áfram. Fæst okkar vakna upp á morgnana og bíða spennt eftir því að skipta um fjarskiptaþjónustu. Það er einmitt það sem gerir þennan bransa (líkt og til dæmis orkugeirann) að krefjandi markaðsumhverfi. Baráttan um hvern einasta viðskiptavin er raunveruleg,“ segir hún. 

Hún segir að það sé flókið að byggja upp vörumerki frá grunni. 

„Að byggja upp vörumerki frá grunni, með tóman striga fyrir framan sig og móta stafræna þróun og ferla, viðskiptavinaupplifun, mörkun vörumerkis, rekstur og allar markaðsaðgerðir hefur verið ótrúlega skemmtilegt. Kosmos er á mjög áhugaverðum stað og er ég þakklát fyrir traustið sem ég hef fengið til að keyra fjölmörg verkefni áfram. En nú er svo komið að mínu hlutverki í vegferð Kosmos er senn að ljúka. Tek með mér dýrmæta reynslu og hlakka til sjá hvað kosmósið kemur með til mín næst,“ segir hún. 

Smartland óskar Sigríði Rakel góðs gengis! 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅