Belgískur landsliðsmaður í Garðabæ

Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur samið við belgíska landsliðsmanninn Loïc Schwartz.

Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur samið við belgíska landsliðsmanninn Loïc Schwartz. Ljósmynd/Stjarnan

Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur samið við belgíska landsliðsmanninn Loïc Schwartz.

Schwartz er 33 ára bakvörður sem hefur leikið í Belgíu, Frakklandi, Grikklandi og Tyrklandi, auk þess að taka þátt í Meistaradeild Evrópu.

Hann lék með Saint-Quentin í frönsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og var með sjö stig, 2,6 fráköst og 2,1 stoðsendingu að meðaltali í 30 leikjum. Hann hitti úr 42,3 prósentum þriggja stiga skota sinna.

Schwartz hefur fjórum sinnum orðið belgískur meistari. Árið 2021 var hann valinn besti belgíski leikmaður deildarinnar og verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar. Hann lék einnig með Belgíu á Evrópumótinu í fyrra.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅