Rubio: Engin þörf á umfangsmiklum hernaðaraðgerðum

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. AFP

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagðist í dag ekki sjá þörf á að hefja á ný umfangsmiklar hernaðaraðgerðir gegn Íran. Efnahagslegar refsiaðgerðir og aðrar takmarkanir skiluðu svo miklum árangri.

„Efnahagsaðgerðirnar gegn Íran hafa svo lamandi áhrif að eins og staðan er núna er engin þörf á umfangsmiklum hernaðaraðgerðum,“ sagði Rubio að loknum fundi utanríkisráðherra G7-ríkjanna í París. „Þetta sagði ég bandamönnum okkar hér í dag.“

Hann sagði Donald Trump Bandaríkjaforseta hafa komist að þeirri niðurstöðu að „að svo stöddu sé engin þörf á umfangsmiklum hernaðaraðgerðum vegna þess að við náum sama markmiði með efnahagslegum aðgerðum“.

Rubio varaði þó við því að færu Íranar yfir „rauðar línur“ væri Bandaríkjaher reiðubúinn. Stjórnvöld í Teheran myndu þá gjalda þess „hræðilegu verði“.

Katar kom að viðræðum í París

Evrópuríkin í G7-hópnum höfðu á fundinum þrýst á Rubio að forðast frekari stigmögnun átaka við Íran.

Mohammed bin Abdulrahman Al Thani, forsætis- og utanríkisráðherra Katar, kom óvænt til viðræðna á hliðarlínu fundarins með fjórum háttsettum evrópskum erindrekum og utanríkisráðherra Sádi-Arabíu, að sögn franskra stjórnvalda.

Aðeins nokkrum klukkustundum áður hafði Al Thani fundað með Trump um hvernig binda mætti enda á stríð Bandaríkjanna gegn Íran. Hann hefur gegnt lykilhlutverki sem milligöngumaður í deilunni.

Trump sagði eftir fund þeirra að skriður væri kominn á tilraunir til að ljúka stríðinu. Það hófst 28. febrúar þegar Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Írans, var drepinn.

„Þær efnahagslegu þrengingar sem Íran og stjórnvöld þar eru nú látin sæta eru gríðarlegar og aukast með hverjum deginum,“ sagði Rubio. Hann sagði olíubirgðir Írans fara þverrandi vegna hafnbanns Bandaríkjanna.

„Þessi róttæka stjórn brjálæðinga leggur þetta á sína eigin þjóð,“ sagði hann um klerkastjórnina í Íran.

Svartsýnn á samkomulag

Rubio virtist þó svartsýnn á að samkomulag næðist við stjórnvöld í Íran. Hann sagði Írana ekki virðast nálgast samningaviðræður af raunsæi að svo stöddu.

„Íranar myndu gjarnan vilja samkomulag. Vandinn er sá að skilyrðin sem þeir halda áfram að setja eru fáránleg. Það er ekki einu sinni hægt að taka þau alvarlega. En það gæti breyst,“ sagði hann.

Hann bætti við: „Fyrr eða síðar verður fólk að borða og það verður að greiða eigin liðsmönnum og öryggissveitum laun. Ég held að það muni hafa áhrif þegar fram líða stundir […] Að lokum síast efnahagslegur veruleikinn inn í hausinn á jafnvel róttækasta brjálæðingnum.“

Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, sem stýrði fundinum í París, varaði við því að ekki væri hægt að útiloka að átök Bandaríkjanna og Írans mögnuðust á ný.

„Annars hefðum við ekki varið svo miklum tíma og kröftum undanfarna tvo daga í að ræða þessi mál“ við Rubio og forsætisráðherra Katar, sagði Barrot.

Ed Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, hvatti til þess að öllum ráðum diplómatíunnar yrði beitt til að ljúka átökunum. Hann varaði við því að pattstaða, þar sem hvorki ríkti stríð né friður, ylli efnahagslegu tjóni.

„Óbreytt staða er okkur efnahagslega óhagstæð og þetta er ekki stöðugt jafnvægi,“ sagði Miliband. Hann hvatti til þess að Hormússund, sem er lykilleið fyrir orkuflutninga, yrði opnað að fullu fyrir skipaumferð á ný.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅