Fleiri konur stíga fram vegna Russell Brands
Tvær nýjar ásakanir á hendur Russells Brands eru til rannsóknar hjá breskri lögreglu og þá hafa henni borist enn fleiri tilkynningar frá því að réttarhöld yfir honum hófust.
Þetta staðfesti yfirmaður í bresku lögreglunni í dag.
Dómarinn í málinu lýsti breska grínistanum og leikaranum sem „kynferðislegu rándýri“ þegar hann dæmdi hann í tíu og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun og þrjú kynferðisbrot í gær.
Verjandinn minnti á eldri og verri tíð
Verjandi Brands, Ian Winter, hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir framgöngu sína í dómsmálinu. Meðal annars hafi hann sagt að Brand gæti ekki verið sekur þar sem brotaþolar í málinu hafi hvorki veitt mótspyrnu né öskrað.
Lucy Powell aðstoðarforsætisráðherra Bretlands sagði að mörg ummæli Winters í réttarhöldunum hefðu verið „ótrúlega niðurdrepandi“ og þá hafa samtök sem beita sér gegn kynferðisofbeldi sagt framgöngu Winters minna á eldri og verri tíð.
Brand hefur þó ekki einungis mætt mótlæti en Megyn Kelly, fyrrum þáttastjórnandi á Fox News, hefur sagt réttarhöldin vera „pólitískar nornaveiðar“ og þá sagði auðkýfingurinn Elon Musk dóminn vera „óréttlátan“.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗