Sá besti þriðja árið í röð
Kiðjabergsvöllur hefur verið valinn besti golfvöllur Íslands hjá World Golf Awards þriðja árið í röð. Frá þessu greinir Golfklúbbur Kiðjabergs á vef sínum.
Guðmundur Ásgeirsson, formaður klúbbsins, tók við verðlaununum við athöfn á Madinaty Golf Club í Egyptalandi.
„Að vera kjörinn besti golfvöllur Íslands árið 2026, og það þriðja árið í röð, er frábær viðurkenning fyrir allt það ómetanlega starf sem hefur verið unnið á Kiðjabergi í fjölda ára,“ segir Guðmundur á vef klúbbsins.
Bæði fagfólk úr golf- og ferðaþjónustu og almenningur tóku þátt í atkvæðagreiðslunni, sem lauk í lok október.
Guðmundur Fannar Vigfússon, framkvæmdastjóri klúbbsins, segir verðlaunin vera hvatningu til að halda áfram uppbyggingu vallarins.
„Vallarstarfsmenn GKB hafa unnið af mikilli ástríðu og metnaði og þessi árangur er okkur öllum mikið ánægjuefni,“ segir hann.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗