Þjóðverjarnir staðfesta komu Íslendingsins
Handboltamaðurinn Einar Bragi Aðalsteinsson mun ganga til liðs við þýska 1. deildarfélagið Göppingen næsta sumar.
Þetta tilkynnti þýska félagið á samfélagsmiðlum sínum en Einar Bragi, sem er 24 ára gamall, skrifaði undir tveggja ára samning við þýska félagið.
Hann er samningsbundinn Kristianstad í Svíþjóð en hann gekk til liðs við sænska félagið í maí sumarið 2024 eftir tvö tímabil í herbúðum FH í Hafnarfirði.
Hann er uppalinn hjá HK í Kópavoginum en stórskyttan var í stóru hlutverki hjá Kristianstad þegar liðið varð Svíþjóðarmeistari á síðustu leiktíð.
Línumaðurinn Ýmir Örn Gíslason er samningsbundinn Göppingen sem er sem stendur í 11. sæti þýsku 1. deildarinnar með 8 stig.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/12/1691212.jpg)