Rifti ráðningarsamningi en þarf að greiða 2,4 milljónir
Fyrirtækið þarf að greiða konunni 2.376.645 krónur auk dráttarvaxta og 850 þúsund krónur í málskostnað á hvoru dómstigi. mbl.is/Eggert
Landsréttur hefur staðfest dóm um að fyrirtæki greiði fyrrverandi starfsmanni sínum tæpar 2,4 milljónir króna í vangoldin laun og aðrar greiðslur vegna starfsloka.
Fyrirtækið hafði rift ráðningarsamningi starfmannsins, sem er kona, eftir að hún tilkynnti veikindi í kjölfar uppsagnar. Það taldi meðal annars að færsla hennar á LinkedIn sýndi að hún væri vinnufær.
Landsréttur taldi konuna hafa fært fullnægjandi sönnur á óvinnufærni sína. Þótt annmarkar hefðu verið á læknisvottorði hennar hefði verið bætt úr þeim með framburði læknisins fyrir héraðsdómi.
Dómurinn var kveðinn upp 5. nóvember og staðfestir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 14. október í fyrra. Fyrirtækið þarf að greiða konunni 2.376.645 krónur auk dráttarvaxta og 850 þúsund krónur í málskostnað á hvoru dómstigi.
Leitaði til læknis tveimur dögum eftir uppsögn
Konan hóf störf hjá fyrirtækinu í ágúst 2021 við sölu og kennslu á hugbúnaði. Henni var sagt upp 7. ágúst 2024 með þriggja mánaða uppsagnarfresti frá næstu mánaðamótum. Fyrirtækið óskaði eftir vinnuframlagi hennar út uppsagnarfrestinn.
Tveimur dögum eftir uppsögnina leitaði hún til læknis sem gaf út vottorð um óvinnufærni hennar vegna sjúkdóms frá þeim degi til 29. nóvember sama ár. Hún tilkynnti fyrirtækinu veikindin 12. ágúst og sendi vottorðið með.
Fyrirtækið taldi vottorðið ófullnægjandi og fór fram á að hún kæmi á fund til að ræða málið og mætti aftur til vinnu. Konan mætti ekki aftur til starfa og 28. ágúst rifti fyrirtækið ráðningarsamningi hennar vegna meintrar verulegrar vanefndar. Það áskildi sér jafnframt rétt til skaðabóta vegna meints brotthlaups úr starfi.
LinkedIn-færsla var ekki yfirlýsing um vinnufærni
Fyrirtækið byggði meðal annars á því að konan hefði birt færslu á LinkedIn þess efnis að hún væri í atvinnuleit, merkt „open to work“. Það taldi færsluna staðfesta að hún væri vinnufær.
Héraðsdómur hafnaði því alfarið að líta mætti á færsluna sem yfirlýsingu um vinnufærni. Veita yrði starfsmanni sem stæði frammi fyrir uppsögn og starfslokum eitthvert svigrúm til að bæta stöðu sína.
Konan sagðist hafa birt færsluna að hvatningu yfirmanns síns en fyrirtækið mótmælti því. Dómurinn taldi færsluna ekki hafa það vægi að hún hnekkti sönnun um óvinnufærni hennar.
Framburður læknis bætti úr annmörkum
Í læknisvottorðinu kom hvorki fram að læknirinn hefði skoðað konuna né að matið byggðist einnig á eldri heilsufarsupplýsingum.
Landsréttur taldi að framburður læknisins fyrir héraðsdómi hefði bætt úr þessum annmörkum með fullnægjandi hætti. Læknirinn hefði skoðað konuna og haft hliðsjón af fyrri sjúkrasögu hennar áður en vottorðið var gefið út. Þá hefði læknirinn haft fullgilt lækningaleyfi og verið í sérnámsgrunni.
Fyrir Landsrétti var einnig lagt fram nýrra vottorð um framlengingu veikindaleyfis konunnar. Þótt það tæki ekki til tímabilsins sem launakrafan varðaði taldi rétturinn það styðja eldra vottorðið, enda varðaði það næstu mánuði á eftir.
Bar hallann af því að útvega ekki lækni
Héraðsdómur benti á að fyrirtækið hefði ekki nýtt þær leiðir sem ráðningar- og kjarasamningur gerðu ráð fyrir til að fá vottorð frá trúnaðarlækni eða lækni á sínum vegum. Fyrirtækið yrði sjálft að bera hallann af því að hafa ekki getað útvegað lækni til að afla frekari upplýsinga eða skýringa.
Þá var hafnað því að konunni hefði borið að ræða veikindi sín á fundi með vinnuveitandanum eða að hún hefði hlaupist ólögmætt á brott úr starfi.
Dæmd fjárhæð tekur til launa og veikindalauna, áunnins orlofs, orlofs- og desemberuppbótar og bónusgreiðslu. Héraðsdómur hafði lækkað kröfur konunnar vegna áður nýtts veikindaréttar og orlofs, en fyrir Landsrétti var ekki lengur tölulegur ágreiningur um kröfuna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗