Engin áform um að selja hluti í Bláa lóninu
Grímur Sæmundsen, stjórnarformaður Bláa lónsins, segist ekki hafa nein áform um að selja hlut sinn í félaginu. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Grímur Sæmundsen, stjórnarformaður, stofnandi og stærsti eigandi Bláa lónsins, segist ekki hafa nein áform um að selja hlut sinn í félaginu í tengslum við fyrirhugaða skráningu þess á hlutabréfamarkað. Hann telur slíka sölu óskynsamlega í ljósi þeirrar verðmætasköpunar sem fram undan sé.
Þetta sagði Grímur í samtali við mbl.is að loknum kynningarfundi vegna hlutafjárútboðs félagsins í Hörpu í morgun.
„Það eru engin áform um það af minni hálfu að selja hluti í félaginu,“ segir Grímur.
Engar tímabundnar söluhömlur
Spurður hvers vegna ekki hafi verið settar tímabundnar söluhömlur á stærstu hluthafa félagsins eins og stundum er gert fyrir hlutafjárútboð segir Grímur enga ástæðu hafa verið talda til þess.
Hann bendir á að hluthafahópur Bláa lónsins hafi staðið þétt við bakið á félaginu undanfarin ár, þrátt fyrir heimsfaraldur og ítrekaðar rekstrartruflanir vegna eldsumbrota.
Grímur segir Bláa lónið ekki hafa átt eðlilegt rekstrarár í sex ár, en að hluthafahópurinn sé enn sá sami.
Hann segist því ekki sjá ástæðu til að ætla að hluthafarnir hyggist selja bréf sín nú þegar horfur séu að batna.
Kólfur áfram stærsti hluthafinn
Kólfur ehf., sem er í eigu Gríms og eiginkonu hans, er stærsti hluthafi Bláa lónsins með 24,9% eignarhlut.
Eftir fyrirhugaðar breytingar á hlutafé í tengslum við kaup félagsins á Arctic Adventures og hlutafjárútboðið verður Kólfur áfram stærsti hluthafinn, með um 19,4% hlut.
Í hlutafjárútboðinu, sem hófst í morgun, eru boðnir til sölu allt að 150 milljónir nýrra hluta í félaginu. Útboðinu lýkur klukkan 16 á föstudag og stefnt er að því að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland 20. nóvember.
Grímur segir félagið hafa staðið af sér miklar áskoranir undanfarin ár og horfir björtum augum til framtíðarinnar.
„Efnahagurinn er sterkur og framtíðin er björt,“ segir hann.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗