Varpa sprengju um varnarmálaráðherra sem lofaði að láta verðleika ráða stöðuhækkunum - Annað virðist komið á daginn

Þegar varnamálaráðherra Bandaríkjanna tók við embætti boðaði hann nýja tíma hjá bandaríska hernum. Hermenn gætu ekki lengur komist til metorða í nafni fjölbreytni, inngildingar og jafnréttis. Verðleikar væru það sem skiptu máli. Þeir fengju stöðuhækkanir sem ættu þær skilið. Nú er samt komið á daginn að verðleikar eru teygjanlegt hugtak í huga ráðherrans, Pete Hegseth. Samkvæmt MS NOW mætti í raun segja að ráðherrann hafi skipt fjölbreytni, inngildingu og jafnrétti út fyrir einsleitni, útilokun og ójafnrétti.

MS NOW hefur heimildir fyrir því að ráðherrann hafi staðið í vegi fyrir framgangi kvenna og litaðs fólks (e. people of color) í starfi, jafnvel í tilvikum þar sem yfirmenn viðkomandi hafa þegar lagt blessun sína á stöðuhækkun. Miðillinn ræddi við háttsettan embættismann sem hefur viðamikla þekkingu á skipun og vali aðmírála og hershöfðingja í hernum. Sá sagði ráðherrann hafa notað niðurstöður leita á netinu til að halda konum og lituðum frá stöðuhækkunum.

Ráðherrann hafi vísvitandi spillt fyrir stöðuhækkunum liðsforingja sem hann taldi styðja verkefni sem tengjast fjölbreytni, inngildingu og jafnrétti, liðsforingja sem áttu þátt í bólusetningarskyldu varnarmálaráðuneytisins vegna COVID-19, þeirra sem tóku þátt í að koma bandaríska hernum frá Afganistan og aðilum sem tengdust fyrrverandi formanni herráðsins, Mark A. Milley, sem var áður æðsti herforingi Donalds Trump Bandaríkjaforseta en eftir að hann lét af störfum gagnrýndi hann forystu Trump harðlega.

Tveir liðsforingjar hafa staðfest lýsingu heimildamannsins. Þessum liðsforingjum var tilkynnt símleiðis að fallið hefði verið frá stöðuhækkunum þeirra og var þeim ekki gefinn kostur á að svara fyrir sig. Þetta þýðir í raun endalok ferils þeirra í hernum en ef liðsforingjar hljóta ekki þá tign sem þeir hafa verið valdir til innan 18 mánaða neyðast flestir þeirra til að hætta í hernum. Afleiðing þessara aðgerða ráðherrans mun vera umfangsmikill missir á reynslu og hæfni í efstu röðum hersins.

Margverðlaunuðum liðsforingjum hefur verið ýtt til hliðar fyrir jafn litlar sakir og að hafa leyft samkomur þar sem regnbogafánum var flaggað í tilefni hinsegin mánaðar.

Talið er að ráðherra hafi þarna farið út fyrir valdheimildir sínar. Lögum samkvæmt er honum aðeins heimilt að fella hermenn af listum yfir fyrirhugaðar stöðuhækkanir þegar um er að ræða tign án stjörnu; um leið og til stendur að gera liðsforingja að einnar stjörnu hershöfðingja eða hækka hann enn frekar í tign þá hefur aðeins forsetinn vald til að fella viðkomandi af listanum. Frestun stöðuhækkunar hjá hernum er líka háð málsmeðferðarreglum þar sem tilkynna þarf viðkomandi ástæðu frestunar með skriflegum hætti og veita honum kost á að nýta andmælarétt.

Þessi frétt kemur á hentugum tíma þar sem þingmaður Repúblikanaflokksins, Thomas Massie, hefur lagt fram tillögu í Bandaríkjaþingi um að Hegseth verði ákærður til embættismissis, meðal annars vegna stríðsins í Íran og eins fyrir að hafa misnotað vald sitt sem yfirmaður varnarmálarmála. 

MediaITE greinir frá. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅