Missti meðvitund og skall með andlitið í malbikið
Niðurstaðan réðist að miklu leyti af upptöku úr eftirlitsmyndavél. Á upptökunni sást meðákærði sparka í andlit brotaþolans svo hann féll með andlitið í malbikið. Í kjölfarið sparkaði hinn maðurinn þrívegis í bak hans þar sem hann lá hreyfingarlaus. Ljósmynd/Colourbox
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt mann í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Hann sparkaði í höfuð annars manns með þeim afleiðingum að sá missti meðvitund og skall með andlitið í malbikið.
Annar maður var dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að sparka þrívegis í bak brotaþolans þar sem hann lá meðvitundarlaus á jörðinni. Refsingar beggja eru skilorðsbundnar til tveggja ára.
Dómurinn var kveðinn upp 3. nóvember. Mennirnir voru báðir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í félagi en dómurinn taldi ekki sannað að þeir hefðu haft samvinnu eða samtök um verknaðinn. Hvor þeirra bæri refsiábyrgð á eigin háttsemi.
Upptaka réð miklu um niðurstöðuna
Atvikið átti sér stað árið 2024 á bílastæði utan við skemmtistað. Báðir mennirnir neituðu sök.
Dómurinn taldi að aðeins væri hægt að ráða málsatvik með vissu að takmörkuðu leyti af framburði ákærðu og vitna. Bæði árásarmennirnir og brotaþolinn hefðu verið talsvert ölvaðir. Niðurstaðan réðist því að miklu leyti af upptöku úr eftirlitsmyndavél.
Samkvæmt mati dómsins höfðu brotaþolinn og maðurinn sem síðar sparkaði í bak hans upphaflega gengið fúsir til áfloga. Brotaþolinn hafði líkamlega yfirburði og hinn maðurinn mátti sín að mestu lítils þar til meðákærði blandaði sér í átökin.
Á upptökunni sást meðákærði sparka í andlit brotaþolans svo hann féll með andlitið í malbikið. Í kjölfarið sparkaði hinn maðurinn þrívegis í bak hans þar sem hann lá hreyfingarlaus.
Talinn hafa mátt gera sér grein fyrir hættunni
Dómurinn taldi sparkið í höfuðið hafa verið meginorsök þess að brotaþolinn missti meðvitund og skall í malbikið. Það hefði jafnframt valdið áverkum hans, meðal annars heilahristingi og tannáverkum.
Manninum hefði ekki getað dulist að sparkið gæti haft alvarlegar afleiðingar og skapað brotaþolanum sérstaka hættu. Hann var því sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás.
Ekki var hins vegar talið sannað að spörk hins mannsins hefðu valdið þeim áverkum sem lýst var í ákæru eða skapað sérstaka hættu. Á upptökunni hefði ekki mátt greina mikinn kraft í spörkunum. Hann var því sakfelldur fyrir líkamsárás samkvæmt vægara refsiákvæði.
Hafnaði því að um neyðarvörn hefði verið að ræða
Maðurinn sem sparkaði í bak brotaþolans bar fyrir sig neyðarvörn. Dómurinn féllst á að hann hefði framan af átt í vök að verjast. Sú staða hefði hins vegar ekki lengur verið fyrir hendi þegar brotaþolinn lá meðvitundarlaus á jörðinni.
Við ákvörðun refsingar var litið til þess að hvorugur mannanna hefði áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Þá yrði þeim ekki kennt um drátt á meðferð málsins.
Hættan og tjónið sem hlutust af sparkinu í höfuð brotaþolans voru virt þeim sem það veitti til refsiþyngingar. Hinum manninum var virt til refsiþyngingar að hafa sparkað í brotaþolann bjargarlausan.
Tæplega 750 þúsund krónur í bætur
Maðurinn sem sparkaði í höfuð brotaþolans var dæmdur til að greiða honum 748.755 krónur í miska- og skaðabætur, auk vaxta. Hinn maðurinn var dæmdur til að greiða 300 þúsund krónur af þeirri fjárhæð óskipt með honum.
Þá var þeim gert að greiða brotaþolanum óskipt 798.092 krónur í málskostnað. Þeir voru jafnframt dæmdir til greiðslu sakarkostnaðar að verulegu leyti.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗