Eitt fullkomnasta húðgreiningartæki heims komið til Íslands
Blue Lagoon Skin Science hefur tekið í notkun EveLab Insight, sem er eitt fullkomnasta húðgreiningartæki heims, í verslun sinni á Laugavegi. Tækið notar háþróaða gervigreind, þrívíddarmyndgreiningu og sérhæfða ljósatækni til að veita ítarlega og einstaklingsmiðaða greiningu á ástandi húðarinnar.
„Vísindi og rannsóknir hafa alltaf verið kjarninn í starfsemi Blue Lagoon Skin Science. Með þessari nýju tækni tökum við enn eitt skrefið í þá átt að gera vísindalega þekkingu á húðinni aðgengilega fyrir viðskiptavini okkar. Við getum nú veitt mun ítarlegri innsýn í ástand húðarinnar og byggt ráðgjöf okkar á nákvæmum mælingum og einstaklingsbundnum þörfum. Þetta er mikilvæg viðbót við þá persónulegu þjónustu sem við viljum veita,“ segir Hólmfríður Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Blue Lagoon Skin Science, í fréttatilkynningu.
EveLab Insight er fyrsta tæki sinnar tegundar hér á landi og markar tímamót í persónulegri húðumhirðu. Með fimm háskerpumyndavélum, sjö mismunandi ljósrófum og þrívíddarskönnun býr tækið til nákvæmt þrívíddarlíkan af andlitinu.
„Með aðstoð gervigreindar greinir það 16 lykilþætti sem tengjast ástandi og öldrun húðarinnar, þar á meðal fíngerðar línur, hrukkur, litabreytingar, sýnilegar og dýpri sólskemmdir, stækkaðar svitaholur, roða, teygjanleika og áferð húðarinnar,“ segir Hólmfríður.
Ólíkt hefðbundnum húðgreiningartækjum, sem byggja að mestu á tvívíðum ljósmyndum, gerir þrívíddartækni EveLab Insight kleift að greina breytingar á andlitslínum, rúmmáli og öldrunareinkennum með meiri nákvæmni.
„Sérhæfð ljósatækni gerir jafnframt kleift að greina breytingar og skemmdir í húðinni sem ekki sjást með berum augum. Þannig fæst heildstæðari mynd af ástandi húðarinnar, bæði á yfirborði og djúpt niður í húðlög hennar,“ segir hún.
Gervigreind gegnir lykilhlutverki í greiningarferlinu. Hún vinnur úr milljónum mælipunkta sem safnast við skönnunina og ber niðurstöðurnar saman við umfangsmikinn gagnagrunn húðmælinga.
„Þannig getur kerfið metið líffræðilegan aldur húðarinnar, greint mismunandi húðvandamál og metið umfang þeirra. Niðurstöðurnar veita ítarlega innsýn í ástand húðarinnar og nýtast til að veita einstaklingsbundna ráðgjöf um húðumhirðu og velja þær húðvörur sem henta þörfum hvers og eins. Einnig er hægt að fylgjast með breytingum á húðinni yfir tíma og meta árangur húðumhirðu,“ segir Hólmfríður.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/11/1691111.jpg)



