Áætla 335 milljóna afgang og 2,5% gjaldskrárhækkun
Gert er ráð fyrir 335 milljóna króna rekstrarafgangi samstæðu Kópavogsbæjar á næsta ári, án tekna af sölu byggingarréttar. Gjaldskrár bæjarins eiga almennt að hækka um 2,5% frá áramótum og ekki er gert ráð fyrir frekari hækkunum á árinu.
Þetta kemur fram í fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2027, sem lögð var fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag. Samhliða henni var lögð fram þriggja ára áætlun fyrir árin 2028–2030.
Á næsta ári er meðal annars fyrirhugað að hefja framkvæmdir við nýjan leikskóla við Naustavör, leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi og viðbyggingu Kópavogsskóla. Þá á að opna bókasafn og menningarmiðstöð í Smáralind.
Skuldir nær óbreyttar að raunvirði
Samkvæmt áætluninni verður rekstrarafgangur A-hluta bæjarsjóðs 209 milljónir króna. Veltufé frá rekstri samstæðunnar er áætlað 5,4 milljarðar króna og skuldaviðmið 77,7%.
Í tilkynningu bæjarins segir að heildarskuldir muni nánast standa í stað að raunvirði þrátt fyrir framkvæmdir og lífeyrisskuldbindingar.
Ekki er reiknað með tekjum af sölu byggingarréttar, þótt gert sé ráð fyrir lóðaúthlutunum á árinu. Sú aðferð hefur verið viðhöfð við gerð fjárhagsáætlana bæjarins frá árinu 2011.
„Ábyrg fjármálastjórn snýst fyrst og fremst um að fara vel með skattfé bæjarbúa og forgangsraða verkefnum með hagsmuni þeirra að leiðarljósi,“ er haft eftir Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóri í tilkynningunni.
Óbreytt álagningarhlutfall á íbúðarhúsnæði
Álagningarhlutfall fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði á að lækka en hlutfallið á íbúðarhúsnæði verður óbreytt. Útsvarsprósentan helst einnig óbreytt.
Samkvæmt tilkynningunni hækkar fasteignamat íbúðarhúsnæðis í Kópavogi að meðaltali um 1%. Forsendur fjárhagsáætlunarinnar gera ráð fyrir 3,6% verðbólgu á næsta ári og telur bærinn að fasteignagjöld lækki því að raunvirði.
Eldri borgarar og örorkulífeyrisþegar munu áfram njóta tekjutengds afsláttar af fasteignasköttum.
Ásdís segir markmiðið með því að takmarka gjaldskrárhækkanir við 2,5% vera að létta undir með heimilunum og draga úr verðbólguþrýstingi.
Heimgreiðslur frá 14 mánaða aldri
Samkvæmt áætluninni hækka heimgreiðslur til foreldra í 121.462 krónur og greiðslur hefjast við 14 mánaða aldur barns í stað 15 mánaða.
Þá verða teknir upp námsstyrkir fyrir starfsfólk grunnskóla sem stundar nám í grunnskólakennarafræðum eða stuðningsfulltrúanámi. Aðstoðarforstöðumenn verða ráðnir við frístundaheimili og þar verður meðal annars lögð áhersla á læsi og aðstoð við heimanám.
Bærinn segir óvissu ríkja um framlög ríkisins til innleiðingar farsældarlaganna og leggur áherslu á að tryggja samfellu í þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.
Áfram verður unnið að undirbúningi skammtímadvalar fyrir fötluð börn. Í þjónustu við eldra fólk verður aukin áhersla á snemmtækan stuðning og samþætta þjónustu. Jafnframt verða helgaropnanir félagsmiðstöðva þróaðar áfram í samstarfi við notendur.
Nýir skólar og bókasafn
Fyrirhugað er að Ísaksskóli reki nýjan leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi fyrir Kópavogsbæ. Auk framkvæmda þar, við Naustavör og Kópavogsskóla á að auka framlög í viðhaldssjóð bæjarins.
Bókasafn og menningarmiðstöð eiga að opna í Smáralind á næsta ári. Þá verður hafinn undirbúningur að nýju bókasafni í Kórnum.
Opnunartími Salalaugar verður lengdur um helgar og boðið upp á skipulagðar miðnæturopnanir í Kópavogslaug. Þar verða einnig settir upp hefðbundinn sánuklefi og innrauður sánuklefi.
Í áætluninni er gert ráð fyrir að íbúum Kópavogs fjölgi um 1,5% og þeir verði 41.036 í árslok 2027.
Samkvæmt áætluninni verður rekstrarafgangur A-hluta bæjarsjóðs 209 milljónir króna. Veltufé frá rekstri samstæðunnar er áætlað 5,4 milljarðar króna og skuldaviðmið 77,7%. mbl.is/Eggert Jóhannesson
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
