Mynda samsteypustjórn fram hjá AfD
Þrír þýskir stjórnmálaflokkar náðu samkomulagi í dag um að halda fjarhægriflokknum AfD frá völdum í einu sambandsríki Þýskalands.
Munu flokkarnir þrír mynda samsteypustjórn undir forystu miðvinstriflokks í sambandsríkinu Mecklenburg-Vorpommern í norðausturhluta landsins.
AfD leiðir í skoðanakönnunum á landsvísu og varð efstur í kosningum í sambandsríkinu með 38 prósent atkvæða.
Vonin ekki úti hjá AfD
Eftir nokkurra vikna viðræður tilkynntu miðvinstriflokkurinn SPD, Græningjar og vinstriflokkurinn Die Linke að þeir hefðu náð samkomulagi um að mynda stjórn.
AfD bindur þó vonir sínar við að mynda stjórn í sambandsríkinu Sachsen-Anhalt eftir að hafa hlotið þar 44 prósent atkvæða í september.
Það yrði í fyrsta sinn sem flokkurinn færi með stjórn í sambandsríkisins.
Slæm útreið kanslarans
Kosningarnar í Mecklenburg-Vorpommern voru einar af þremur slíkum kosningum í september þar sem flokkur Friedrich Merz kanslara, CDU, fékk slæma útreið en flokkurinn náði ekki lágmarkskjöri og fékk því enga menn kjörna.
Hefur það ýtt undir efasemdir um framtíð hans við stjórn CDU en hann hefur þvertekið fyrir að hann hyggist segja af sér.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗